SELVAÐ 1, 110 REYKJAVÍK. Falleg fjögurra herbergja jarðhæð með sérinngangi og stæði í bílageymsluhúsi í Norðlingaholtinu. Birt stærð eignar er skráð 114,7 fm. skv. HMS., þar af er 7,6 fm. sérgeymsla í sameign.Útgengi er úr stofu á rúmgóða timburverönd með skjólveggjum. Þvottahús er innan íbúðar. Stæði í bílageymslu fylgir með eigninni ásamt geymslu sem staðsett er við hlið bílastæðis.
Vandaðar innréttingar frá Brúnás og eldunartæki frá Brandt.
ÝTTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLITNánari lýsing:Rúmgóð flísalögð forstofa með fjórföldum fataskáp ásamt áföstum skóskáp.
Rúmgott hol með parketi á gólfi. Flísalagt þvottahús innan eignar með borðplötu og skolvaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þvottasnúrur.
Parketlögð stofa með útgengi á rúmgóða timburverönd með skjólveggjum og hliði út í sameiginlegan garð.
Eldhúsið er opið við stofu með fallegri hvítri innréttingu. Flísar milli efri og neðri skápa. Spanhelluborð og gufugleypir. Ofn í vinnuhæð og parket á gólfi. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með, allt eftir nánara samkomulagi.
Eyja með skúffum og góðum skápum stofu megin.
Þrjú parketlögð svefnherbergi, öll með góðum fataskápum.
Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf. Hvít innrétting með skúffum og speglahurðum. Baðkar með sturtuaðstöðu. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Gardínur í stofu eru frá Nútíma og myrkvunargluggatjöld í svefnherbergjum frá Álnabæ.
Geymsla er í sameign við hlið bílastæðis.
Þetta er skemmtileg og vel skipulögð íbúð þar sem allt aðgengi er eins og best verður á kosið. Vinsæl staðsetning þar sem ekki þarf að fara yfir götur til að komast í leikskóla/grunnskóla, verslun, þjónustu eða afþreyingu. Stutt í náttúru/útivist og á helstu stofnbrautir.
Vinsamlegast bókið skoðun Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is