Brekastígur 36, Vestmannaeyjum
Einbýlishús á tveimur hæðum auk rislofts, samkvæmt fasteignaskrá er hvor hæð 35 fm, í heild skráð 70 fm auk rislofts. Húsið er á steyptum grunni/steypt jarðhæ og svo af timbri og klædd/einangruð, byggt árið 1927 og skiptist svo:
Aðalhæð (35 fm)Aðalinngangur, stigi niður á jarðhæð
Eldhús með parketi, hvít innrétting, uppgangur um lúgu uppí gott geymsluloft
Stofa með parketi
Herbergi (1) innaf stofu, parket
Jarðhæð (35fm)Hol með parketi
Herbergi (2) með parketi
Herbergi (3) innaf herbergi nr. 2, parket
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefi, tengi f. þvottavél og þurrkara
Geymsla/fírkompa, gengið inní hana frá gangstétt að vestanverðu, þar er hitagrind og hitakútur og vatn/slanga.
Ágæt baklóð í norður, gróin og með trjágróðri, möguleiki að opna grindverk til að taka td. ökutæki inná lóð.
Skipt var um járn á þaki árið 2004 en þörf er á að skoða stálklæðningu en eignin er byggð þannig að sökkull/jarðhæð er steypt og klædd timbri, miðhæð er af timbri og var forsköluð og einangrað utan á það og klætt með stáli. Veggir að innan á jarðhæð voru nýlega einangraðir að innan. Eignin hefur verið drenuð í norður og austu
Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali, hb@eyjar.is, gsm 8931068