Húsið að Keilufelli 5 í Reykjavík er einbýlishús á tveimur hæðum auk bílskúrs, reist úr innfluttum timbureiningum á vegum Viðlagasjóðs eftir Vestmannaeyjagosið árið 1973. Undirstöður eru staðsteyptir sökklar og steypt gólfplata á þjappaðri fyllingu. Útveggir eru byggðir úr timburgrind klæddir að utan með bandsagaðri, rauðmálaðri timburklæðningu. Þak er klætt litaðri stálklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri málaðir í ljósum lit. Bílskúr er við hlið hússins, uppbyggður með sama hætti.
Elín Viðarsdóttir, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynna í sölu; Keilufell 5, 111 Reykjavík.
Um er að ræða 175,6 fm einbýlishús á tveimur hæðum auk bílskúrs.
Húsið er reist úr innfluttum timbureiningum 1973. Undirstöður eru staðsteyptir sökklar og steypt gólfplata á þjappaðri fyllingu. Útveggir eru byggðir úr timburgrind klæddir að utan með bandsagaðri, rauðmálaðri timburklæðningu. Þak er klætt litaðri stálklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri málaðir í ljósum lit. Bílskúr er við hlið hússins, uppbyggður með sama hætti.
- Einbýlishús á 2 hæðum
- Húsið er skráð skv. HMS 175,6 fm: jarðhæð 77,8 fm + önnur hæð 69 fm auk bílskúrs
- Bílskúr sérstæður 28,8 fm
- 4 svefnherbergi
- 2 baðherbergi
- Pallur
- Lokaður gróinn garður - stór 814 fm lóð
Eignin skiptist í :
Forstofa, hol, eldhús, stofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi, geymsla/hitakompa. Garður.
1. hæð: Forstofa, þvottahús, eldhús, gestasalerni, 2 stofur, svalir.
2. hæð: Stigapallur/hol, 3 svefnherbergi, Baðherbergi. Svalir. Óskráð geymslurými undir súð.
Nánari lýsing: Gengið er inn á 2. hæð hússins. Þaðan er svo annars vegar gengið niður í kjallara sem er nýtt sem 3ja herbergja íbúð í dag og hins vegar upp á efri hæð.
1. hæð- aukaíbúð: Sérinngangur er í þennan eignarhluta en einnig er innangengt úr holi 2. hæðar. Forstofan er parketögð með skáp. Af henni er parketlagður gangur/hol og öll önnur rými hæðarinnar af því: Þvottahús með glugga. Eldhús og stofa í sama rými; eldhús með viðar innréttingu á vegg og eyju og stofa með útgengi í garð. 2 parketlögð svefnherbergi með skápum. Baðherbergi, flísalagt með sturtu, salerni, vaskinnréttingu og tengi fyrir þvottavél.
2. hæð: Forstofa; Flísalögð með skáp. Af því er þvottahús með innréttingu og glugga. Hol; Parketlagt. Af holi er gestasalerni, eldhús, stofur og stigi upp á 3. hæð svo og 1.hæð. Gestasalerni; Flísalagt með salerni og vaski. Eldhús: Flísalagt með U-laga hvítri innréttingu og borðkrók. Eldhúsið var allt endurnýjað 2016 (innréttingar og tæki). Stofa/borðstofa er mjög rúmgóð og björt með gluggaum á 2 útveggjum og útgengi á suður svalir og niður stiga út í garðinn. Stofur eru parketlagðar
3. hæð: Af stiga upp á hæðina er hol og af því er súðageymsla (óskráð), 3 parketlögð svefnherbergi öll með skápum og hjónaherbergi með útgengi út á svalir: Flísalagt baðherbergi með sturtu, baðkari, salerni og vaskinnréttingu.
Lóð: Gróinn, með hellulagðri suður verönd. Lokaður útengi úr kjallaraíbúð en einnig af svölum 2.hæðar.
Bílskúr: Skráður skv. ÞÍ 27,5 fm. Niðurtekið loft að hluta, rafmagn, vatn og hiti.
Samantekt: Rúmgott og vel viðhaldið 8 herbergja endaraðhús - frábær fjölskyldueign - með hellulagði verönd og tvennum svölum auk bílskúrs.
Húsið getur nýst sem ein heild eða 2ja íbúða hús.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs í síma 695-8905 og/eða á netfanginu elin@valholl.is