Betri Stofan fasteignasala og Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is, sími 775 1515 kynna með stolti: 180,1 fm raðhús við Trilluvog 5 í 104 Reykjavík / Vogarhverfinu, sem er 6 til 7 herbergja og er á þremur hæðum með útleigumöguleika á jarðhæð. Eign sem gefur möguleika á tveimur útleigueignum auk tveggja bílastæða í bílakjallara, sem er með hleðslustöð.
Raðhús með sérafnotaflöt og þaksvölum. Í húsinu er alrými, þ.e. stofa, borðstofa og eldhús, fimm til sex svefnherbergi, þrenn baðherbergi, þvottahús, tvær forstofur og anddyri í bílakjallara.
1. HÆÐ
Forstofa: Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús: Innréttingar frá HTH, hvítar með steinborðplötu. Tæki eru frá AEG, innbyggð uppþvottavél. Eigendur hafa bætt við innréttingu í eldhúsi sem er einnig tækjaskápur eða bar, innrétting frá HTH.
Stofa/borðstofa: Opin við eldhús, parket á gólfi og útgengt út á sérafnotaflöt. Komið er leyfi fyrir garðskála yfir sérafnotaflöt.
Baðherbergi: Baðinnrétting í ljósum lit með steinborðplötu, sturtuklefi og flísar á gólfi.
Sérafnotaréttur til vesturs.
2. HÆÐ
Hol: Með parket á gólfi.
Sjónvarpsherbergi: Með parket á gólfi og útgengt út á góðar þaksvalir. Í rýminu er sérsmíðað skrifborð ásamt skápum frá HTH.
3 svefnherbergi: Öll með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðinnrétting í ljósum lit með steinborðplötu. Baðkar, handklæðaofn og salernið er upphengt og innbyggt.
JARÐHÆÐ (AUKAÍBÚÐ):
Forstofa: Sérinngangur inn í aukaíbúð frá Súðarvogi, forstofa með fataskáp, parket á gólfi.
2 herbergi: Tvö herbergi eru á hæðinni, parket á gólfi. Annað herbergi er hægt að nýta sem stofu og eldhús (eldhúsinnrétting frá IKEA) og er þá komin 2ja herbergja íbúð á jarðhæð.
Baðherbergi: Með sturtu, innrétting með steinborðplötu og flísar á gólfi.
JARÐHÆÐ (AÐALÍBÚÐ):
Anddyri: Sérinngangur inn á jarðhæð aðalíbúðar, gengið inn frá bílastæði í bílakjallara, flísar á gólfi.
Þvottahús: Hvít innrétting og flísar á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign hússins. 2 sérbílastæði í bílakjallara.
Öryggiskerfi: Myndavélakerfi í dyrabjöllum, með möguleika á að bæta við fleiri myndavélum.
Umhverfið: Orðið gróið og fjölskylduvænt hverfi sem er við útivistaperlur Reykjavíkur, Elliðaárdalinn, Smábátahöfnina og Laugardalinn. Leikskóli í hverfinu, göngufæri.
Húsið er einangrað að innan með sjónsteypu að utan, sem mun breytast með samþykktum framkvæmdum yfir í glæsilega klæðningu. Fyrirhuguð verklok eru í ágúst 2025.
Allar nánari upplýsingar gefur: Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali