Kasa fasteignir 461-2010.Kristjánshagi 12. íbúð 209. Virkilega falleg 3 herbergja 96 fm íbúð á efri hæð í 2 hæða fjölbýli, tvö baðherbergi eru í eigninni. Rúmgóðar svalir með miklu útsýni.
Íbúðin skiptist í: Forstofu, hjónaherbergi með sér baðherbergi og fataherbergi, barnaherbergi, stofu/eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Einnig er geymsla í sameign og mjög rúmgóðar svalir.Forstofa: Í forstofu er tvöfaldur dökkur fataskápur og flísar á gólfum.
Baðherbergi: Baðinnrétting er dökk og efri skápur er speglaskápur. Baðherbergi er flísalagt í hólf og golf. Vegghengt salerni, sturtuhorn úr gleri.
Eldhús: Eldhús innrétting er dökk með ljósri borðplötu, glerplata er á milli skápa. Í eldhúsinnréttingu er keramikhelluborð, innbyggður ísskápur og frystir og innbyggð uppþvottavél.
Stofa: Er í opnu rými með eldhúsi, þar er parket á gólfum, gengið er út á stórar svalir með miklu útsýni út frá stofu.
Svefnherbergi: Í hjónaherbergi er parket á gólfum inn af hjónaherbergi er fataherbergi með góðum skápum og skúffum, baðherbergið er með lítilli innréttingu, upphengdu salerni og sturtu. Hitt svefnherbergið er með parketi á gólfum og góðum skáp.
Þvottahús: Þar er góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, gengið er inn í þvottahúsið frá baðherbergi.
Geymsla er í íbúðinni og einnig er geymsla í sameign á jarðhæð.
- Mikið útsýni er úr íbúðinni.
- Svalir eru 26.7 fm.
- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Fata og baðherbergi eru inn af hjónherbergi.Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.