Sunnudagur 12. júlí
Fasteignaleitin
Opið hús:16. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 12. júlí 2026

Grænahlíð 16 íb301

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
113.7 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
97.500.000 kr.
Fermetraverð
857.520 kr./m2
Fasteignamat
90.550.000 kr.
Brunabótamat
59.450.000 kr.
Mynd af Jórunn Skúladóttir
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2031454
Landnúmer
107267
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sjá upplýsingaskjal seljanda
Raflagnir
sjá upplýsingaskjal seljanda
Frárennslislagnir
Sjá upplýsingaskjal seljanda
Gluggar / Gler
Sjá upplýsingaskjal seljanda
Þak
Sjá upplýsingaskjal seljand
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður svalir
Lóð
24,1
Upphitun
Hitaveita / ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Háborg fasteignasala og Jórunn, löggiltur fasteignasali, kynna með stolti í einkasölu Grænahlíð 16 105 Reykjavík, stórglæsilega 113,7 fm fjögurra til fimm herbergja íbúðahæð á efstu hæð. Sameiginlegur inngangur með 2. hæð Eigninni fylgir merkt stæði og hleðslustöð. Möguleiki á að setja 4. svefnherbergið á kostnað stofunar, en þar var herbergi á árum áður. Afhending samkomulag. Hér er um að ræða sérlega bjarta og smekklega íbúð á 3. hæð (efstu hæð). 

Hlíðahverfið er rótgróið og eftirsótt hverfi og Grænahlíð 16 er bakhús staðsett við grænt svæði,  sem er opið grænt svæði með leikskóla, leikvelli og sparkvelli. Klambratún í göngufæri ásamt íþróttamannvirki. Einnig er grunnskóli í göngufæri og framhaldsskóli.

Lykilupplýsingar
  • Stærð: 113,7 fm
  • Herbergi: 3 (3 svefnherbergi + stofa, möguleiki á 4. svefnherberginu)
  • Hæð: 3. hæð til vinstri (efsta hæð)
  • Sameiginlegur: Já, af stigapalli
  • Byggingarár: 1957
Lýsing eignarinnar
Komið er inn í sameiginlegan gang. Þegar upp er komið er forstofa opin með góðum skáp og slá til að leggja frá sér. Þegar inn er komið er rúmgott hol, sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðarinnar. Úr holi er gengið inn í tvær stofur sem eru mjög rúmgóðar og bjartar með útgengt út á suður svalir. Eldhúsið sem hefur verið endurnýjað 
Gengið er upp eina hæð á veglegan yfirbyggðan stigapall með háu og reisulegu þaki yfir stærstum hluta stigans. Sérinngangur er af stigapalli. Forstofan tekur vel á móti með góðum fataskápum og þaðan er gengið inn í alrýmið.

Alrými, eldhús og stofur
Alrýmið er einstaklega glæsilegt með hallandi lofti og hámarkslofthæð sem nær allt að 4,16 metrum undir mæni, sem gefur rýminu mikla vídd og birtu. Harðparket er á öllum gólfum og flísar á votrýmum, en gólfefni íbúðarinnar voru endurnýjuð árið 2020.

Eldhúsið var endurnýjað árið 2013. Komið var fyrir ljósri innréttingu með eyju. Stein borðplötur.

Stofur eru  bjartar og rúmgóðar, með útgengt á suður svalir með sól allann daginn.

Svefnherbergi og baðherbergi:
Þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsla liggja saman á gangi.
·       Hjónaherbergi: með góðum fataskápum
·       Barnaherbergi 1: bjart og rúmgott með skápum
·       Barnaherbergi 2: bjart og með skápum

Baðherbergið var endurnýjað að hluta árið 20130 á smekklegan máta þar sem meðal annars voru settar nýjar flísar á golf. Einnig var sett vönduð innrétting með stein plötu á skáp með skúffum og handlaug og spegli með hliðarlýsingu. Inn á baðherberginu er þvottahús með innréttingu og góðri vinnuaðstöðu, sem einnig var endurnýjuð árið 2013.

Framkvæmdir og endurbætur:
Innanhúss   
  • 2026 Skipt um glugga á suðurhlið (á kostnað seljanda)
  • 2013 Baðherbergi og eldhús endurnýjað með steini á borðum og raflagnir yfirfarðar
  • 2013 Þvottavél og þurrkaði komið fyrir í innréttingu á baði 
  • 2025 Íbúin máluð og hurðir sprautu lakkaðar
  • 2025 Fataskápur í forstofu sprautu lakkaður
    
Hús og sameign:
  • 2013: Helmingur þaks dunnanvert frá mæni, var endurnýjaður 
  • 2013  Settar nýjar þakrennur
  • 2020 Dren og skolplagnir endurnýjaðar
    
Geymslur og sameign:
  • Geymsla í kjallara birtir fm 1,2 fm (fleiri rúmmetrar)
  • Sameiginlegt þvottahús í kjallara, sem þau nota ekki, aðstaða á baði innan íbúðar
  • Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á lóð
  • Lóð í óskiptri hlutfallslegri sameign
Bílastæði:
Grófjöfnuð lóð í sameign við húsið. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni með rafhleðslustöð. 

Húsið
Matshlutinn 01 sem stendur á steinsteyptum grunni er steinsteypt hús, skiptist í kjallara og þrjár hæðir. Á húsinu er tvíhalla þak sem hallar til norðurs og suðurs, suðurhlið þaksins er með miklum halla sem myndar útvegg þriðju hæðar að sunnanverðu. Í kjallara er ein íbúð og 4 geymslur sem tilheyra hverri séreign. 

Lóðin  sem er í óskiptri sameign er með tyrfðum flötum, með miklu og góðu rými fyrir börn að leik.

Húsfélag og rekstrarkostnaður:
Í húsinu starfar virkt húsfélag, Grænahlíð 16, húsfélag, í umsjón Eignaumsjónar hf. Hússjóður íbúðarinnar er í skilum samkvæmt yfirlýsingu húsfélags dags. 12.07.26. Mánaðarleg gjöld eignarinnar eru samtals á mánuði 18.075-kr. Virkt húsfélag er starfandi með traustri fjárhagsstöðu. 

Hverfið:
Hlíðarnar er gróið hverfi og státar af fjölbreyttum skólastigum. Klambratún er eitt að kennileitum í Hlíðunum. Stutt í menningu, þjónustu og skemmtun. Úr Hlíðunum er stutt í stofnbrautir og í allar áttir. 
Húsið stendur á grænu svæði fyrir aftan húsið eru leikskóli, leikvöllur, sparkvöllur og fallegt útivistarsvæði. Grunnskóli og framhaldsskóli eru í göngufæri.

Samantekt:
Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða íbúðarhæð þar sem hugað hefur verið að endurbótum. Fjagra til fimm herbergja íbúðarhæð efstu hæð með gróðri sem teygir sig í átt að stofugluggum. . Eigninni fylgir sérmerkt stæði með hleðslustöð. Grænt svæði sunnan megin við húsið og eftirsótt staðsetning í Hlíðunum gera þessa eign að sérlega spennandi kosti fyrir barnafólk.

Frekari upplýsingar:
Allar nánari upplýsingar veitir Jórunn, löggiltur fasteignasali, í síma 845-8958 eða á jorunn@haborg.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/02/201225.100.000 kr.27.000.000 kr.109.3 m2247.026 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg (113)
Opið hús:14. júlí kl 12:30-13:00
móa_vefur (5).png
Skoða eignina Laugaborg (113)
Laugaborg (113)
105 Reykjavík
117.8 m2
Fjölbýlishús
312
975 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (111)
Opið hús:14. júlí kl 12:30-13:00
móa_vefur (4).png
Skoða eignina Laugaborg (111)
Laugaborg (111)
105 Reykjavík
119.5 m2
Fjölbýlishús
413
919 þ.kr./m2
109.800.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (413)
Opið hús:14. júlí kl 12:30-13:00
móa_vefur (3).png
Skoða eignina Laugaborg (413)
Laugaborg (413)
105 Reykjavík
108.4 m2
Fjölbýlishús
312
995 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (110)
Opið hús:14. júlí kl 12:30-13:00
móa_vefur (2).png
Skoða eignina Laugaborg (110)
Laugaborg (110)
105 Reykjavík
101 m2
Fjölbýlishús
312
988 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin