Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 4. og efstu hæð í fallegu fjölbýli miðsvæðis í Reykjavík. Góður bílskúr og stæði þar við fylgja eigninni. Nýbúið að skipta um alla glugga á austurhlið og einnig er ný svalahurð og gluggi þar við. Blokkin er nýlega steinuð og hefur hlotið gott viðhald. Þak hefur verið endurnýjað og var málað 2015. 3ja svefnherbergið er gert með léttum vegg og tekið af stofu og auðvelt að breyta aftur. Eignin er laus við kaupsamning.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 148,8 fm og þar af er bílskúr 21,6 fm og 2 geymslur samtals 15,6 fm.
Nánari lýsing:
Hol er rúmgott með parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á góðar vestur svalir.
Eldhús var endurnýjað 2008 með snyrtilegri hvítri innréttingu, háf yfir gashelluborði og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum nýlegum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari með sturtu.
Þvottahús er innan íbúðar með linoleum dúk á gólfi og mjög rúmgott.
Bílskúr er skráður 21,6 fm og er rafmagn, hiti og vatn. Nýbúið að drena við bílskúrslengju bakatil.
2 sérgeymslur fylgja eigninni og eru á geymslugangi í sameign hússins. Önnur er skráð 12,8 fm og hin 6,8 fm.
Góð hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Stutt er í alla helstu þjónustu, Kringluna, skóla, íþróttir og leikhús sem allt er í göngufæri.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is