Domusnova og Ingunn Björg kynna fallega og töluvert mikið endurnýjaða 88,8 fm íbúð við Silfurteig 6 í Reykjavík.
Um er að ræða fallega bjarta og vel skipulagða 3 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í þríbýlishúsi á þessum frábæra stað í Laugardalnum.
Skipulag eignar: Forstofa , 2 svefnherbergi, eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými, baðherbergi, geymsla. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni þar sem hver er með sína vél.
Fasteignamat næsta árs er 69.000.000.
Einstaklega falleg og vel staðsett eign í Laugardalnum þar sem örstutt er í skóla og leikskóla sem og aðra þjónustu.
ATH! Ekki er mögulegt að skoða eignina fyrir auglýst opið hús.
Á undanförnum árum hafa eftirfarandi endubætur farið fram innan íbúðar af fyrri eigendum:- Gólfefni: Öll gólfefni endurnýjuð innan íbúðar árið 2018.
- Eldhús: Innrétting ásamt tækjum og blöndunartækjum endurnýjað árið 2018.
- Baðherbergi: Flísar , baðinnrétting , ásamt hreinlætis og blöndurtækjum endurnýjað af fyrri eigendum.
- Allir ofnar hafa verið endurnýjaðir í eigninni.
- Allir rofar og tenglar hafa verið endurnýjaðir.
- Gler í öðrum af tveimur gluggum á suðurhlið endurnýjað fyrir utan í gler opnanlegu fagi. Listar á þeim glugga hafa verið endurnýjaðir að utanverðu.
Nánari upplýsingar veitir:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Lýsing eignar:Andyri: Flotað gólf, fatahengi.
Eldhús: Er í opnu rými með borðstofu og stofu, vel skipulagt og bjart með gluggum á tvo vegu. Svört rúmgóð innrétting, með helluborði og bakaraofni, innbyggð uppþvottavél, eyja með skúffum, frístandandi ísskápur. Harðparket á gólfi.
Borðstofa / Stofa: Er rúmgóð og björt með stórum gluggum sem vísa út í garð. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Er
bjart og rúmgott með gluggum á tvo vegu, fataskápur, harðparket á gólfi.
Herbergi 2: Er staðsett inn af forstofu, harðparket á gólfi.
Hol: Í miðju íbúðarinnar er hol með fataskáp. Þaðan er gengið inn á baðherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, hvít innrétting, speglaskápur á vegg, sturta með hertum glervegg, handklæðaofn, upphegnt salerni.
Geymsla: Sér geymsla staðsett í sameign.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í sameign þar sem hver er með sína vél.
Garður og lóð: Hellulög stétt er fyrir framan inngang í íbúðina. Fallegur gróinn garður.
Skipulagi innan íbúðar hefur verið breytt af fyrri eigendum og er hún því ekki skv. upprunalegri teikningu. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.