LIND Fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir nýlega , glæsilega þriggja herbergja 80,8 m2 íbúð á 4.hæð í lyftublokk við Mýrargötu 35 á jaðri Vesturbæjar í 101 Reykjavík. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 74,2 m2 auk 6,6 m2 geymslu. Eignin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.
Innréttingar og skápar eru íslensk smíði frá AXIS. Borðplata í eldhúsi er ljós Quartz-steinn frá Granítsmiðjunni og er vaskur í eldhúsi undirlímdur. Eldhústæki eru vönduð . Innbyggður ísskápur með frysti. Spanhelluborð. Gólfhitakerfi með Danfoss stýribúnaði. Nánari lýsing. Forstofa með fataskáp og fatahengi.
Baðherbergi með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum , walk in sturtu, upphengt salerni og handklæðaofni, flísar á gólfi og hluta til á veggjum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og skápur fyrir ofan.
Eldhúsið er opið inn i stofu með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, innbyggður ísskápur og frystir, ásamt innyggðri uppþvottavél. Eyja sem hægt er að sitja við með span helluborði og bakaraofni, steinn á borðum.
Stofa með innbyggðum fataskáp, útgengi út á svalir sem snúa út í garð.
Hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp á heilum vegg.parket á gólfi.
Herbergi með parketi á gólfi . ( fataskápur fylgir )
Geymsla með máluðu gólfi. ( 6,6 m2 )
Gólfefni - Harðparket á gólfum, flísar á baðherbergi.
Frábær staðsetning í hjarta vesturbæjar þar sem stutt er í fjölda veitingahúsa, verslunar og þjónustu. Allar upplýsingar veita Helga Pálsdóttir í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is