ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu – Suðurgata 24, Reykjanesbæ. Um er að ræða fallega og rúmgóða eign í þríbýlishúsi, staðsett í hjarta Keflavíkur. Eignin er á efstu hæð með sérinngangi og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a. góða útleigumöguleika. Eignin er skráð samtals 168,3 fm, þar af er íbúð 132,5 fm og bílskúr 35,8 fm. Húsið er steypt, byggt árið 1956 og hefur fengið reglubundið viðhald.Allar nánari upplýsingar veitir Páll Þorbjörnsson lgf i síma 560-5501 og á netfanginu pall@allt.is*** Sérinngangur,
*** 4 svefnherbergi í aðal íbúð, Fataherbergi inn af hjónaherbergi.
*** Stúdíóíbúð í bílskúr (ósamþykkt). Góðir útleigumöguleikar.
*** Eldhús og baðherbergi nýla endurnýjað. Suðursvalir.
*** Gott geymslupláss í risiSkipulag eignar:Gengið er upp steyptar tröppur að sérinngangi. Við tekur stigagangur með steinteppi og fallegu járnhandriði sem leiðir upp í íbúðina.
Forstofa / gangur, með aðstöðu fyrir fatahengi á palli
Alrými – stofa, borðstofa, eldhús. Bjart og rúmgott rými með parketi á gólfi. Útgengt er á svalir.
Eldhús: Nýlega endurnýjað með fallegri innréttingu þar sem viður og hvítur litur fara vel saman. Granít borðplötur, eyja með helluborði, bakaraofn í vegg, djúpur vaskur og innbyggð uppþvottavél og ískáp.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi og nýlegu fataherbergi inn af.
Svefnherbergi: Þrjú barnaherbergi, öll parketlögð, fataskápar í einu þeirra.
Baðherbergi: Stórt og smekklega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Ris: Gott geymslupláss með niðurdraganlegum stiga.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr þar sem útbúin hefur verið stúdíóíbúð (ósamþykkt) með nýlegum gólfefnum og innréttingum.
Þvottaaðstaða: Þvottavél og þurrkari á baðherbergi, auk sameiginlegs þvottahúss í kjallara.
Kjallari: Sameiginlegt þvottahús. Eignaskiptayfirlýsing er til frá 1999.
Lóð: Gróin og tyrfð. Bílastæði er fyrir framan bílskúr.
Staðsetning: Eignin er staðsett miðsvæðis í Keflavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, sjúkrahús, skóla, verslanir og afþreyingu.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.