Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Virkilega björt og falleg 2 herbergja endaíbúð á annari hæð á vinsælum stað við Gnoðarvog 38 í Reykjavík. Frábær fyrstu kaup. Eignin er skráð 63,7 m2, íbúð á hæð 59,1 m2 og geymsla 4,6 m2.
// Frábær Staðsetning.
// Frábær fyrstu kaup.
// Enda íbúð,gluggar á 3 vegu.
Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi og með fataskáp.
Eldhús: Parketi á gólfi, mjög falleg innrétting með miklu skápa og borð plássi. Borðkrókur innst í eldhúsinu.
Stofa: Opið er inn í stofu úr borðkróknum. Stofan er rúmgóð björt með parketi á gólfi og útgengi út á fínar svalir til vesturs.
Svefnherbergi: Er rúmgott með fínum skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta með gleri, uppáhengt salerni og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. Baðherbergið hefur nýlega verið snyrtilega uppgert.
Geymsla: Staðsett í kjallara og er skráð stærð 4,6 m2.
Í kjallara hússins er sameiginleg hjólageymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi með þurrkaðstöðu, þar sem hver er með sína vél.
Austurhlið ásamt norður- og suðurgöflum hússins eru klæddir að mestu leyti en neðsti hluti þessara hliða og vesturhlið er sléttpússuð og máluð.
Íbúðin er vel staðsett og í göngufæri við Skeifuna, Laugardal og Glæsibæ.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.