Eignatorg kynnir: Óvenjulega vel umgengin 4ra herbergja neðri hæð í vönduðu fjögurra íbúða húsi ásamt mjög rúmgóðum bílskúr. Gott útsýni. Þvottahús innan íbúðar. Tvennar lokaðar svalir. Húsið er steinað að utan að verulegu leiti og voru aðrir fletir málaðir sumarið 2023, þ.e. gluggar, veggir á jarðhæð og stigahús. Til greina kemur að taka minni íbúð upp í hluta kaupverðs. Eignin getur verið laus og til afhendingar fljótlega.
Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðin 119,9 fm, sérgeymsla innst í bílskúr 17,6 fm og bílskúrinn 39,4 fm. Samtals er eignin því skráð 176,9 fm.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskáp. Gangur með parketi á gólfi. Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi, gluggum til austurs og hurð út á rúmgóðar, lokaðar austur svalir. Opið eldhús með parketi á gólfi, fallegri og vandaðri innréttingu, borðkrók og gluggum á tvo vegu . Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, baðkari, sturtu, innréttingu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu, vinnuborði og skolvaski. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Hjónaherbergi með parketi á gólfi, skáp og hurð út á lokaðar norðvestur svalir. Herbergi með parketi á gólfi og skáp.
Bílskúrinn er sérlega rúmgóður með gönguhurð, rafdrifnum opnara á innkeyrsluhurð, heitu og köldu vatni, innréttingu og epoxy gólfhúð.
Innst í bílskúrnum er mjög rúmgóð sérgeymsla. Aðgengilegt er að stækka bílskúrinn á kostnað geymslunnar ef vill.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.