Bogi fasteignasali og Lind fasteignasala kynna til sölu: Stóra vandaða 4ra herbergja íbúð í litlu fjölbýli. Íbúðinni fylgir stór bílskúr. Sérinngangur. Þrjú svefnherbergi. Þvottahús innan íbúðar. Tvennar lokaðar svalir. Möguleiki að byggja sólpall á baklóð í vestri. Eikarinnréttingar og eikarparket. Innfelld lýsing. Flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Gott útsýni. Laus til afhendingar. Möguleg skipti á minni/ódýrari íbúð.
Skv FMR. Alls skráð 176,9fm. Íbúðarrými 119,9fm. Geymsla á 1. hæð 17,6fm. Bílskúr 35,5fm. Byggingarár 2008. Geymslan er inn af bílskúr.
Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskáp. Gangur með parketi á gólfi. Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi, gluggum til austurs og hurð út á rúmgóðar, lokaðar austur svalir. Opið eldhús með parketi á gólfi, fallegri og vandaðri innréttingu, borðkrók og gluggum á tvo vegu . Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, baðkari, sturtu, innréttingu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu, vinnuborði og skolvaski. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Hjónaherbergi með parketi á gólfi, skáp og hurð út á lokaðar norðvestur svalir. Herbergi með parketi á gólfi og skáp.Bílskúrinn er sérlega rúmgóður með gönguhurð, rafdrifnum opnara á innkeyrsluhurð, heitu og köldu vatni, innréttingu og epoxy gólfhúð. Innst í bílskúrnum er mjög rúmgóð sérgeymsla. Aðgengilegt er að stækka bílskúrinn á kostnað geymslunnar ef vill.
Húsið er steinað að utan að verulegu leiti og voru aðrir fletir málaðir sumarið 2023, þ.e. gluggar, veggir á jarðhæð og stigahús.
Seljendur/Kaupendur mínir fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir: Bogi Molby Pétursson 6993444 / Molby@fastlind.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég verðmet eignina þína.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900.kr