Reisulegt og fallegt einbýlishús með bílskúr og glæsilegri lóð á góðum og fjölskylduvænum stað miðsvæðis í ReykjavíkEignin er neðst í botnlangagötu alveg við grænt svæði.
* Baðherbergi hannað af Rut Kára.* Lóðin var hönnuð af Stanislas Bohic og er sérlega snyrtileg með hellulögn og verönd með skjólvegg , heitum potti og geymsluhúsi.
* Húsið var klætt með viðhaldsléttri klæðningu 2008, hannað var Birni Skaptasyni hjá Atelier, arkitektum.* Einstakt útsýni til suðurs, norðurs og vestur yfir Reykjavík og út til sjávar.
* 5-6 svefnherbergi og rúmgóðar stofur.
* Fjölskylduvæn staðsetning við fallega náttúru.Endurbætur á eigninni tiltelur ma.:
* 2012 var þakpappi og þakjárn endurnýjað
* 2015 var baðherbergi og gestasalerni á aðalhæð endurnýjað
* Ofnar hafa verið endurnýjaðir að hluta
* Húsið var klætt að utan fyrir nokkrum árum
Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar samkv. Fí er 259,10 m2 og þar af er bílskúr skráður 29,2 m2 og útigeymsla 3,1 m2. Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 125.600.000 kr.
1. hæð :
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Hol er flísalagt og rúmgott með þakgluggum.
Gestasalerni er flísalagt með handlaug og wc.
Stofa 1 er rúmgóð og flísalögð með hornglugga. Útgengt út á hellulagða verönd með skjólvegg og heitum potti.
Eldhús er flísalagt með U-laga innréttingu með helluborði, bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp og gott skápapláss. Morgunverðarkrókur við vegg. Útgengt út á
verönd til norðurs með mikla möguleika.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvask og skápum.
Svefnherbergisgangur er með parket á gólfi og opnast í rúmgott
hol með þakglugga og nýlegum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt baðkari og sér-sturtu, fallegri innréttingu og lýsingu. Endurnýjað árið 2015. Hannað af Rut Kára.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp. Útgengt út á lóð.
Svefnherbergi 3 var áður tvö en hefur verið sameinað í eitt stórt herbergi.
2. hæð :
Stigi er teppalagður og leiðir upp í rúmgóða stofu.
Stofa 2 er í dag nýtt sem svefnherbergi 5. Parket á gólfi og arinn. Stórbrotið útsýni.
Glerlistaverk eftir myndlistakonuna Stellu Guðmundsdóttir eru í glugga í stiga og á 2. hæð.
Kjallari :
Stigi er teppalagður og leiðir niður í hol.
Geymslurými undir stiga hefur verið breytt í krúttlegt leikrými.
Svefnherbergi 4 er í dag nýtt sem sjónvarpsstofa. Parket á gólfi. Gæti einnig verið nýtt sem
hjónasvíta með eigin bað og fataherbergi.
Salerni með handlaug og wc.
Lítil
geymsla er þar innaf sem gæti einnig verið fataherbergi.
Geymsla er rúmgóð með máluðu gólfi.
Bílskúr er í bílskúrslengju ofan við húsið. Skráður 29,2 m2. Upphitaður með heitu og köldu vatni.
Bílastæði er við húsið og einnig fleiri bílastæði ofar í götunni hjá bílskúrslengjunni.
Öll helsta þjónusta er í göngufæri eins og verslanir, sund, heilsurækt, skóla og heilsugæslu, sem og frábærar gönguleiðir, íþróttir og útivistarsvæði við Elliðaárdal svo fátt eitt sé nefnt.
Fallegt grænt svæði aðgengilegt við húsið og margar vinsælar gönguleiðir til suðurs og norðurs frá þeim punkti.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.