LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu bjart og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með bílskúr á skjólgóðum stað í Ásahverfinu í Garðabæ. Frábært skipulag, aukin lofthæð og suðurgarður með timburverönd og heitum potti. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Eignin skiptist í forstofu og hol, rúmgott eldhús, stofu og borðstofu, fjögur - fimm svefnherbergi, sjónvarpshol, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Í bílskúr er búið að stúka af og útbúa rúmgott svefnherbergi sem er þá fimmta svefnherbergið. Rúmgott geymsluloft.
Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is.
Birt stærð eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS er 224,4 fm en þar af er bílskúr 30,6 fm. Fasteignamat næsta árs er 182.550.000 kr.
Nánari lýsing:
Forstofa, flísalögð.
Forstofuherbergi (11,1 fm) með fataskáp, nýlegt harðparket á gólfi.
Baðherbergi með salerni og handlaug, flísar á gólfi.
Eldhús, bjart og rúmgott með góðri innréttingu og miklu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð, flísar á gólfi.
Þvottahús innaf eldhúsi með innréttingu og skolvask, flísar á gólfi og útgengt á baklóð.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými, nýlegt harðparket á gólfi og útgengt á timburverönd á baklóð.
Hjónaherbergi með fataherbergi á teikningu (21,6 fm), harðparket á gólfi.
Hol með fataskápum, var áður sjónvarpshol en er fataherbergi innaf hjónaherbergi á teikningum.
Barnaherbergi I (14,6 fm) með fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi II (13,8 fm) með fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi, nýlega endurbætt með upphengdu salerni, handlaug, walk-in sturtu og frístandandi baðkari, flísar á gólfi.
Bílskúr (30,6 fm) þar sem búið er að stúka af rúmgott svefnherbergi, fimmta svefnherbergið.
Húsið er byggt úr timbri á steyptri plötu og þak borið uppi af kraftsperrum.
Lóð fullfrágengin með hellulögn, timburpöllum og grasblett.
Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is