Miðvikudagur 1. apríl
Fasteignaleitin
Opið hús:06. apríl kl 15:00-15:20
Skráð 1. apríl 2026

Álfaskeið 14

HæðHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
99.8 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
700.401 kr./m2
Fasteignamat
72.300.000 kr.
Brunabótamat
52.750.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2072746
Landnúmer
119847
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
sjá lýsingu
Raflagnir
sjá lýsingu
Frárennslislagnir
sjá lýsingu
Gluggar / Gler
sjá lýsingu
Þak
sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
50
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Ekkert starfandi húsfélag
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og mikið endurbætta 4ra herbergja efri sérhæð í tvíbýli með sérinngangi. Eignin er vel staðsett innst í botnlanga á einstaklega rólegum og eftirsóttum stað við Álfaskeið 14 í Hafnarfirði, stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og miðbæ Hafnarfjarðar.

Birt stærð eignar er 99,8 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er sérgeymsla 4,8 fm.

Eignin skiptist í opið hol, stofu og borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Eigninni fylgir sérgeymsla á jarðhæð og hlutdeild í sameign, þar á meðal sameiginlegu þvottahúsi.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT - Nánari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á netfangið thorey@fastlind.is

Nánari lýsing:

Forstofa með flísum á gólfi og stiga upp í íbúð.
Eldhús með hvítri innréttingu, bakarofni, spanhelluborði og háfi. Tengi er fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með parketi og útgengi á svalir. Borðstofa var áður svefnherbergi og auðvelt er að breyta rýminu aftur í herbergi.
Hjónaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og glugga. Baðherbergi var endurnýjað árið 2021.
Sérgeymsla er á jarðhæð og sameiginlegt þvottahús.

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð og vel viðhaldið. Árið 2025 var hjónaherbergi endurbætt með nýju parketi, glugga og ofni. Veggur var opnaður og endurbyggður með nýrri einangrun vegna eldri leka. Baðherbergi var endurnýjað að árið 2021 með nýjum tækjum, innréttingum, flísum og glugga. Árið 2015 var íbúðin gerð upp að hluta, m.a. rafmagn og rafmagnstafla endurnýjuð, harðparket lagt (utan eldhúss og baðherbergis), eldhús uppfært að hluta og rými opnað milli stofu og gangs með rennihurðum.

Húsið er staðsteypt tveggja hæða tvíbýlishús með tvíhalla þaki. Kjallari er undir hluta hússins. Sameign í kjallara var máluð árið 2026. Múrviðgerðir voru framkvæmdar á suðurhlið árið 2025 og austurhlið árið 2024, ásamt múrinndælingu til styrkingar. Ný þakrenna og niðurfall voru sett upp árið 2024. Sama ár voru skólplagnir myndaðar og reyndust í mjög góðu ástandi. Árið 2019 voru gluggar málaðir að utan, svalagólf lagfært og sett upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Þak var endurnýjað árið 2017 og gert við sprungur á austurgafli. Háaloft var einangrað með steinull.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/01/202140.450.000 kr.46.300.000 kr.99.8 m2463.927 kr.
06/10/201522.150.000 kr.30.700.000 kr.99.8 m2307.615 kr.
03/01/200718.650.000 kr.21.500.000 kr.99.8 m2215.430 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Helluvað 13
Bílastæði
Skoða eignina Helluvað 13
Helluvað 13
110 Reykjavík
96.1 m2
Fjölbýlishús
312
820 þ.kr./m2
78.800.000 kr.
Skoða eignina Háteigur 4
Skoða eignina Háteigur 4
Háteigur 4
250 Garður
106.9 m2
Raðhús
312
600 þ.kr./m2
64.140.000 kr.
Skoða eignina Austurströnd 12
Bílastæði
Skoða eignina Austurströnd 12
Austurströnd 12
170 Seltjarnarnes
66.1 m2
Fjölbýlishús
211
967 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Þjóðbraut 3 - 503
Bílastæði
Þjóðbraut 3 - 503
300 Akranes
84.2 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin