*** BLIKAHÓLAR 2 - 111 REYKJAVIK ***
PRIMA fasteignasala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: Sérlega falleg og mikið endurnýjaða 3ja herbergja 94 fm útsýnis íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Eignin skiptist í bjarta og rúmgóða stofu sem og borðstofu, fallegt eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi m sturtuklefa og þvottaaðstöðu. Góð sameign með lyftu og sérgeymsla í kjallara.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT
SJÁ MYNDBAND AF EIGN (VIDEO)Nánari lýsing:Eldhús: Opið rými með fallegri dökkri innréttingu og borðplötum úr límtré, innfellt í skúffur er ísskápur og frystir, 90 cm Smeg eldavél, morgunverðar borð við glugga úr límtré, flotað gólf.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með útgengi suður svalir, flotað gólf.
Hol: Sérsmíðað skrifborð með góðu skúffuplássi. flotað gólf.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með flotað gólf. Fastar skúffur og fataslá. Fastur rúmbotn með rafmagni. Veggþiljurþ
Herbergi: Flotað gólf. Góður fataskápur.
Baðherbergi: Flísar, sturta, upphengt wc, innrétting, tengi fyrir þvottavél.
Sér geymsla og hjólageymsla í sameign.Nýtt snjallkerfi fyrir lýsingu.
Glæsileg útsýnis íbúð á barnvænum stað með alla helstu þjónustu í nágreni.
Fyrirhugað fasteignamat 202554.700.000 kr.
Nánari upplýsingar veitir:Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 /
oliver@primafasteignir.is__________________________________________________________________________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRIMA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.