Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna einstaklega bjarta og vel skipulagða íbúð á 7. og efstu hæð við Lækjasmára 8 í vönduðu lyftuhúsi með yfirbyggðum svölum og stæði í bílageymslu. Eignin er skráð 0702, og er 102,8 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er geymsla íbúðar á jarðhæð 6,9 fm.
Íbúðin skiptist í opna forstofu/hol, tvö svefnherbergi, fataherbergi, rúmgóða stofu, sjónvarpshol, eldhús, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing;
Forstofa er með góðum fataskáp opnast inn í hol og alrými íbúðarinnar.
Stofur eru opnar og bjartar með gluggum á tvo vegu, bæði til suðurs og vesturs yfir Kópavoginn.
Eldhúsið er með viðar innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og gott skúffu- og skápapláss. Borðkrókur við enda eldhússins tengist bæði stofurýminu og útgengi út á yfirbyggðar svalir (12 fm.) sem snúa í suður. Svalalokun er yfir hluta svalanna en það rými er flísalagt og nýtist allan ársins hring.
Í holi fyrir framan eldhúsið er góð sjónvarpsaðstaða eða vinnuaðstaða.
Svefnherbergin eru tvö, rúmgott hjónaherbergi með vel innréttuðu fataherbergi inn af, bæði með opnanlegum gluggum og aukaherbergi með fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt með góðri innréttingu með miklu hirsluplássi, sturtuklefa, salerni og handklæðaofni.
Þvottahús er innan íbúðar, þar er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting með skáp, hillum og skolvaski.
Íbúðin er með fallegu viðarparketi fyrir utan baðherbergi og þvottahús sem eru flísalögð sem og svalirnar.
Þetta er einstaklega vel um gengin íbúð með góðu aðgengi.
Sameign er til fyrirmyndar, nýleg teppi á stigagangi, lóðin vel hirt og góð aðkoma. Ytra byrði hússins er álklætt.
Sér geymsla íbúðarinnar er 6,9 fm. með hillum?
Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu, en auk þess er rúmgott bílastæði á lóð hússins þar sem búið er að setja upp rafhleðslustöðvar fyrir bíla.
Þetta vel staðsett eign við Kópavogsdalinn með góðum göngu- og hjólastígum, stutt í alla verslun og þjónustu, skóla og grunnskóla.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.