Mánudagur 7. september
Fasteignaleitin
Skráð 7. sept. 2026

Melalind 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
104.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
795.585 kr./m2
Brunabótamat
58.500.000 kr.
Byggt 1997
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22297681
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða virkilega fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) á þessum vinsæla stað í snyrtilegu fjölbýli við Melalind 6 í Kópavogi. Virkilega vel umgengin sameign. Mjög fallegt útsýni er frá stofu og eldhúsi til vesturs yfir Kópavogsdalinn. Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 96 fm merkt 03-01 og geymslan er merkt 01-04 og er hún 8,2 fm eða samtals: 104,2 fm. Þakið var yfirvarið og málað árið 2018 og stigagangur málaður og skipt um teppi árið 2017.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í hol með innbyggðum fataskáp. Á hægri hönd við inngang er stofa með útgangi út á rúmgóðar svalir með timbur flísum á svalargólfi. Eldhúsið er með fallegri nýlegri grárri háglans innréttingu (frá árinu 2019), mósaíkflísar milli efri og neðri skápa, span helluborð. Mjög rúmgóður borðkrókur. Innaf eldhúsinu er búr með nýlegri innréttingu. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, sér sturta og baðkar með sturtu. Snyrtileg innrétting með efri og neðri skápum og spegli á milli. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. Tvö svefnherbergi og er fataskápur í báðum herbergjum. Eigninni fylgir 8,2 fm sérgeymsla með hillum. Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. 

ÞETTA ER FALLEG EIGN Í RÓTGRÓNU OG FJÖLSKYLDUVÆNU HVERFI ÞAR SEM STUTT ER Í VERSLANIR OG ÞJÓNUSTU.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lækjasmári 8
Hleðslustöð
Skoða eignina Lækjasmári 8
Lækjasmári 8
201 Kópavogur
102.8 m2
Fjölbýlishús
413
875 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 42
Bílastæði
Opið hús:10. sept. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Naustavör 42
Naustavör 42
200 Kópavogur
110.8 m2
Fjölbýlishús
312
992 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Lundur 2
Skoða eignina Lundur 2
Lundur 2
200 Kópavogur
100.7 m2
Fjölbýlishús
211
962 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Sementsbraut 15 íbúð 101
Efsta hæð
Sementsbraut 15 íbúð 101
300 Akranes
91.7 m2
Fjölbýlishús
312
835 þ.kr./m2
76.569.500 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin