Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 3ja herbergja íbúð með svalir og sérafnotareit um 11.2fm inn í sameiginlegan garð. Íbúð merkt:0106, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 71,3fm að stærð á 1. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 64,3fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á svalir, 2 svefnherbergi, Verönd út af hjónaherbergi, gott baðherbergi, sér þvottahús og sér geymslu í sameign merkt: 0014, skráð 7,0fm. ásamt bílstæði í bílakjallara merkt: B22. Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Matthildi, fasteignasali í GSM: 690-4966 eða matthildur@fstorg.isSjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉRSækja söluyfirlit HÉRVetrarbrautin er hluti af nýju hverfi við jaðar friðlandsins í Heiðmörk.
Húsin eru í randbyggðarformi með fallegum inngarði. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotareiti en íbúðir á efri hæðum eru með svalir. Einstök staðsetning við golfvöll GKG við Vífilstaði þar sem hægt er að bruna á golfbílnum beint úr frístundaskúrnum út á völl.
Fallegar eignir þar sem áhersla er lögð á loftgæði og hefu
r hver íbúð sitt eigið loftskiptakerfi.Við hönnun innanhúss var horft til þess að halda innréttingum þannig að þær séu klassískar og tímalausar en jafnframt nútímalegar. Vandað var við val á eldhús- og blöndunartækjum.
Næg bílastæði eru í bílakjallara og hverri íbúð fylgja 1 til 3 einkastæði. Þá fylgir hluta íbúðanna frístundaskúr eða bílskúr í bílakjallara.
Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum. Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli.
UtanhússfrágangurKlæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.
Innanhússfrágangur Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.
Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.
Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.
Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.
Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60
Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.
Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.
Tæki og búnaðurEldhústæki (flest frá Siemens): Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.
Sameignir: Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.
Hönnun og framkvæmdir
Arkitektar: Arkís arkitektar.
Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
Áætluð afhending er haust 2025