Borgir fasteignasala kynnir : Bjarta og fallega 3 herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi að Elliðabraut 14. Húsið er byggt af Mótex árið 2020, fjöldi íbúða í húsinu eru 19. Um er að ræða vandaða og bjarta íbúð þar sem mikið er lagt upp úr hljóðvist og loftgæði. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Norðlingaholt er í nágrenni við Rauðhól, Rauðavatn, Heiðmörk og Elliðavatn en þar eru margar góðar gönguleiðir og stutt í náttúruna. Sameign er rúmgóð og björt. Hvítir skápar upp í loft frá Axis. Innfelld lýsing frá Rafkaup. Nýlega opnaði Bónus verslun í göngufæri við eignina. Einnig er Norðlingaskóli og leikskólinn Rauðhóll í göngufæri. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.
Samkvæmt HMS er birt stærð eignarinnar 79,2 fm. Auk stæðisins merkt B80
Nánari lýsing :
Anddyri : Harðparket á gólfi, fataskápar.
Hjónaherbergi : Harðparket á gólfi, fataskápar.
Barnaherbergi : Harðparket á gólfi
Baðherbergi : Baðinnrétting. Hreinlætistæki og handklæðaofn frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Gólfið er flísalagt og veggir að hluta upp í loft. Walk in sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurkara.
Eldhús : Harðparket á gólfi, innrétting með vaski frá Grohe blöndunartækum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru að gerðinni AEG frá Ormsson.
Stofa/borðstofa : Harðparket á gólfi gengið út um rennihurð út á rúmgóðar 12 fm svalir, gólfsíðir gluggar að hluta. Heimilt er að loka svölunum með svalalokun.
Geymsla : Geymsla er í kjallara
Bílageymsla : Búið að setja grunntengingu fyrir rafmagnsbíl, stæðið er sérstaklega rúmgott. Innangengt er í bílageymsluna.
Annað :
Í kjallara eru einkageymslur fyrir hverja íbúð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sérstakt loftræstikerfi er í íbúðinni. Kerfið hefur loftskipti með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu og soga lofti út úr baði/þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki er þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar. Í lofti eru hljóðeinangraðar plötur. Öryggiskerfi er í sameign og í bílakjallara. Úr bílakjallara er greiður aðgangur. Djúpruslagámar eru í jaðri lóðar á tveimur stöðum með flokkun.
Eignin getur verið laus fljótlega.
Nánari upplýsingar veita Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali sími 896-8030 eða Jóhanna M Jóhannsdóttir í námi til löggildingar sími 820-0788