Falleg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í Sigvaldahúsi á góðum stað í Samtúni 16. Nálægð við miðbæ Reykjavíkur og alla helstu þjónustu.
** Húsið teiknaði Sigvaldi Thordarson og Gísli Halldórsson
** Mikið endurnýjuð að innan
** Góð staðsetning nálægt allri helstu þjónustu
** Laus til afhendingar við kaupsamning
** Frábær fyrstu kaupNánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. Þjóðskrá Íslands er 72,8m2 þar af geymsla 0,6m2
Eignin skiptist í anddyri, forstofu, 2 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stofu, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing
Gengið er upp tröppur inn í anddyri
Forstofa er með vínylparketi.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu, handlaug, wc og sturtu. Flísar í hólf og gólf.
Eldhús hefur verið endurnýjað. Hvít innrétting með dökkri borðplötu, pláss fyrir uppþvottavél, flísar á milli efri og neðri skápa, helluborð, bakaraofn og veggháfur. Flísar á gólfum.
Stofa er rúmgóð og björt með glugga á tvo vegu. Vínylparket á gólfum.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum fataskáp. Vínylparket á gólfum.
Svefnherbergi II er rúmgott með vínylparket á gólfum.
Sérþvottahús er á neðri hæð
Geymsla 0,6m2 er undir útitröppum.
Íbúðin snýr út í rólegan, gróinn suðurgarð sem er í sameign.
2022-2024 hafa farið fram töluverðar framkvæmdir m.a:
** Þak málað og settar upp snjógildrur. Skipt um þakrennur og niðurföll frá þeim og settar upp laufgildrur.
** Efri hluti húss einangraður og klæddur með álklæðningu
** Neðri hluti húss múraður og málaður
** Ný rafmagnstafla í íbúð.
Samtún 16, merkt 0101, er falleg eign á góðum stað í nálægð við miðbæ Reykjavíkur sem og Laugardalinn ásamt þeirri þjónustu sem Borgartúnið býður upp á. Hentar vel fyrir fyrstu íbúðarkaupendur.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.