** Opið hús mánudaginn 21. september frá kl. 16:30 til 17:00- Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulagt 178,2 m2 einbýlishús með bílskúr við Bergholt 16 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 178,2 en þar af íbúðarrými 145 m2 og bílskúr 33,2 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi (fimm á teikningu), baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, bílskúr og geymslu. Stór timburverönd, hellulögð verönd, geymsluskúr og hellulagt bílaplan. Húsið er vel staðsett í vinsælu og grónu hverfi í Mosfellsbæ, stutt frá skóla, leikskóla, verslun og allri helstu þjónustu. Skv. upplýsingum frá seljanda var elduhús og þvottahús endurinnréttað árið 2007. Gluggar endurnýjaðir árið 2011. Þak endurnýjað árið 2013 (timburklæðning, einangrun, pappi og járn) einnig var jarvegskipt í lóð bílastæði og hellulagt í garði. Um 60 m2 timburverönd árið 2014. Húsið múrað á tveimur hliðum og allir veggir málaðir árið 2020. Baðherbergi endurnýjað árið 2020. Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Gestasnyrting er með flísum á gólfi, salerni og handlaug.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Arinn er í stofu. Úr stofu er gengið út á timburverönd í vesturátt.
Eldhús er með hvítri innréttingu og borðkrók, parket á gólfi. Í innréttingu er bakaraofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Úr eldhúsi er gengið út á timburverönd í suðurátt.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 ( tvö herbergi á teikningu) er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi. Rennihurð er inn í herbergið.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, vegghengdu salerni, baðkari, sturtu og innréttingu með viðaráferð.
Þvottahús er með flísum gólfi og stórri innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er útgengt út á bílaplan.
Bílskúrinn er með rafmagnsopnun á innkeyrsluhurð. Innst í bílskúr er geymsla.
Verð kr. 139.900.000,-