Mánudagur 2. júní
Fasteignaleitin
Skráð 1. júní 2025
Deila eign
Deila

Skipholt 1(102)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
118.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
841.618 kr./m2
Fasteignamat
89.550.000 kr.
Brunabótamat
63.750.000 kr.
JS
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Byggt 1960
Lyfta
Garður
Aðgengi fatl.
Sérinng.
Fasteignanúmer
2010545
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
5
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýjar
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir til norðurs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Ekki eru fyrirhugaðar framkvæmdir eða yfirstandandi framkvæmdum.
Háborg kynnir: Skipholt 1 105 Reykjavík. Íbúð 102, glæsileg rúmgóða 4ra herbergja íbúð, í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Sérinngangur frá Skipholti. Íbúðin er skráð 118,7 fm og skipar anddyri, hol, bað með þvottaaðstöðu, 3 herbergi, alrými með útgengi út á 14,5 fm svalir og bað, ásamt 9,5 fm geymslu í kjallara. Harðparket á gólfum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Falleg íbúð með aukinni lofthæð. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt göngufæri í matvöruverlslun og niður á Hlemm sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými.

Sjá heimasíðu verkefnis.
Allar frekari upplýsingar gefur Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is

Húsið: Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.

Hönnun: HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhendast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.
Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Garðurinn: Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.
Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Staðsetning: Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni.
Íbúar í Skipholti eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H á myndinni (sjá mynd í myndasafni) auk þess sem fullt er af ógjaldskyldum stæðum td í Skipholtinu. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.
 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 1
Skoða eignina Skipholt 1
Skipholt 1
105 Reykjavík
97.5 m2
Fjölbýlishús
312
1004 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Engihlíð 16
Bílskúr
Opið hús:02. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Engihlíð 16
Engihlíð 16
105 Reykjavík
131.8 m2
Hæð
412
758 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 1(503)
Skoða eignina Skipholt 1(503)
Skipholt 1(503)
105 Reykjavík
82.7 m2
Fjölbýlishús
312
1244 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 1(501)
Skoða eignina Skipholt 1(501)
Skipholt 1(501)
105 Reykjavík
79.5 m2
Fjölbýlishús
312
1244 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin