Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg 4 herbergja hæð/íbúð, með sér inngangi og bílskúr í hlíðunum í Reykjavík. Eignin er alls skráð 131,8fm, þar af bílskúr 26,4fm. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, baðherbergi, tvö svefnherbergi, tvennar stofur, og eldhús ásamt tveimur geymslum í kjallara, auk snyrtilegs þvottahús í sameign. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali GSM: 898-6106, eða netfang sigurdur@fstorg.isSÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉRNánari lýsing: Íbúðin er björt hæð/endaíbúð sem hefur verið talsvert endurnýjuð í gegnum árin. Eignin er með sérinngangi með flísalagða forstofu. Svefnherbergin eru tvö og eru þau rúmgóð. Tvær stofur og opið eldhús setja svip sinn á íbúðina með skemmtilegu flæði. Stofurnar eru einstaklega bjartar og setur fallegur franskur gluggi svip sinn á aðra stofuna. Möguleiki er að nýta þá stofu sem þriðja svefnherbergið án nokkura framkvæmda. Eldhúsið er með skápaplássi sem ná upp til lofts, eyju og fallegum háf, gaseldavél, innfeldri uppþvottavél, sem fylgir og rými fyrir tvöfaldan ísskáp. Innangengt er úr forstofu í snyrtilega sameign í kjallara. Sameiginlegt þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurkara, ásamt tveimur geymslum í eigu íbúðarinnar. Bílskúr og bílastæði, fyrir framan bílskúrinn, fylgja fasteigninni. Heildarstærð er skráð 131,8 fm og skiptist hún þannig að íbúðin ásamt geymslum eru 105,4 fm og bílskúrinn er 26,4 fm.
Skipulag íbúðar og frekari uppl.: Forstofa með flísar á gólfi. Hol er rúmgott með parket á gólfi.
Stofa og eldhús eru samliggjandi.
Borðstofa er með tvennar rennihurðir yfir i stofu. Eldhúsið var endurnýjað 2015. Eldhúsinnrétting frá HTH. Gashelluborð, AEG ofn frá Ormsson. Grohe blöndunartæki. Vatnslögn var lögð að ísskáp. Borðplata er úr gegnheilli olíuborinni eik.
Baðherbergi var endurnýjað 2015. Grohe blöndunartæki við vask og Damixa blöndunartæki í sturtu. Grohe salerni. Nýjar niðurfalls/skolplagnir lagðar niður í kjallara, fyrir bæði salerni og sturtu.
Svefnherbergi: hjónaherbergi er bjart og rúmgott. Sérsmíðaðir skápar frá Brúnás. Utangegnt er á svalirnar úr herberginu. Barnaherbergi er rúmgott með stórum glugga. Skápar frá IKEA.
Bílskúr: Þak endurnýjað 2015 og klætt með pappa, bætt við öndun og þakgluggi fjarlægður. Bætt við niðurfallsröri utan á skúr til að taka við vatni af þakinu. Hluti af plani var steyptur upp á nýtt 2017. Allar raflagnir, rofar og ljós voru endurnýjuð 2018 og er rafmagnstafla í bílskúrnum. Ný kaldavatnslög lögð 2017.
Viðhald og endurnýjun:2023 – Epoxy lagt á gólf sameignar
2023 - Gluggar á hæðinni yfirfarnir, skipt um lamir og læsingar þar sem þurfti
2022 – Ný útiljós sett upp
2021 – Múrviðgerðir á húsinu, þar sem þurfti
2019 – Skipt um þakpappa og járn á þaki.
2017 – Raflagnir endurnýjaðar í sameign, þvottahúsi og geymslum.
2017 - Vatnslagnir í þvottahúsi endurnýjaðar.
Dren var skoðað árið 2024 og var sú skoðun án athugasemda.
ath. íbúðin er með sér hitamælir og sér rafmagnsmæli.
Samantekt: Um er að ræða góða hæð, 4ra herbergja með sér inngangi og bílskúr. Góð sameign og vel við haldið hús og garður. Staðsetning er mjög góð innan Hlíðanna og stutt er bæði í náttúruna í Öskuhlíðinni og miðbæinn. Leiksskóli er í einungis 2 mín göngufjarlægð, skóli í um 5 mín göngufjarlægð og innan við 10 mín ganga í kaffihúsið á Kjarvalsstöðum. Lítil verslun er í 5 mín göngufjarlægð. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali GSM: 898-6106, eða netfang sigurdur@fstorg.is