Fimmtudagur 4. desember
Fasteignaleitin
Skráð 1. des. 2025
Deila eign
Deila

Holtsgata (Aukaíbúð) 13

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
189.5 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
685.488 kr./m2
Fasteignamat
108.850.000 kr.
Brunabótamat
83.750.000 kr.
Mynd af Hlynur Halldórsson
Hlynur Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1950
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2075858
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
nýlegt járn á þaki
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Gólhiti/ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Hraunhamar fasteignasala kynna í einkasölu mjög fallegt og mikið endurnýjað 189.5fm 7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr þ.s búið er að innrétta góða 2 herbergja íbúð. Eignin er skráð 189,5 fm en þar af er bílskúrinn 30 fm sem innréttuð hefur verið mjög góð tveggja herbergja íbúð. Innkeyrsla er hellulögð og með snjóbræðslu. Nýlega var steyptur pallur fyrir framan húsið.Í bakgarði er heitur pottur (Snorralaug) frá Normex (2021). Bætt var við niðurfalli í garðinn.

Mjög góð staðsetning í suðurbæ Hafnarfjarðar rétt hjá Flensborgarskóla og grunn- og leikskóli eru í stuttu göngufæri. Miðbær Hafnarfjarðar er í þægilegu göngufæri og Suðurbæjarlaug í næsta nágrenni.

Skipting eignarinnar:  Neðri hæðin
: Forstofa, 4 svefnherbergi, gangur, baðherbergi og þvottahús. Efri hæð: stofa/borðstofa, eldhús, tvö herbergi og baðhergi.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin ár á vandaðan hátt. 

Lýsing eignar: neðri hæð. Gengið er inn í rúmgóða forstofu á neðri hæð, gangur með útgangi í bakgarð. Fjögur svefnherbergi, þrjú þeirra rúmgóð en það fjórða minna, nýtt sem geymsluherbergi í dag. Baðherbergi er flísalagt með sturtu, innrétting með handlaug, speglaskápur, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Stórt og gott þvottahús á neðri hæðinni innréttingu og hillum og epoxy á gólfi. Gólfefni á gangi og herbergjum er vinylparket.  
Úr forstofu er stigi upp á efri hæðina. Efri hæð. Komið er upp á stigapall rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með glugga og góðri innréttingu með handlaug, upph.wc og baðkar m.sturtu.Stofa er rúmgóð björt og góð borðstofa sem er opin og búið er að gera lítið herbergi inn af stofu. Mjög gott eldhús með fallegri innréttingu með mjög góði skápaplássi, nýlegt span helluborð, háfur og bakaraofn í vinnuhæð. flísar á milli skápa og vinyl dúkflísar eru á gólfi. Yfir stofu er háaloft.

Auka íbúð í bílskúr er sérlega falleg og skiptist í litla stofu með eldhúskrók, gott herbergi þar innaf með glugga. Baðherbergi flísalagt með sturtuklefa og lítilli innréttingu, gluggi á baði. 

Húsið var upphaflega byggt 1950 en byggt var við húsið og byggður bílskúr 1979. Húsið steinsteypt klætt að utan og virðist í mjög góðu ástandi og hefur fengið mjög gott viðhald sl. fjögur ár. Innbyggð uppþvottavél og nýleg ledljós fylgja með eigninni.

Vönduð og góð eign í suðurbæ Hafnarfjarðar.


Allar nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
5. Umsýslugjald til fasteignasölu kr.68.200.-m.vsk.

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í 41 ár. – Hraunhamar.is 

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/05/2020108.000.000 kr.68.000.000 kr.189.5 m2358.839 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1979
30 m2
Fasteignanúmer
2075858
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.100.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vitastígur 12
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Vitastígur 12
Vitastígur 12
220 Hafnarfjörður
145.2 m2
Einbýlishús
423
922 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurbakki 17
Bílskúr
Skoða eignina Norðurbakki 17
Norðurbakki 17
220 Hafnarfjörður
130.5 m2
Fjölbýlishús
312
919 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 302
Strandgata 26 íb. 302
220 Hafnarfjörður
135.5 m2
Fjölbýlishús
413
996 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbrún 31
Skoða eignina Hraunbrún 31
Hraunbrún 31
220 Hafnarfjörður
193.4 m2
Raðhús
413
620 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin