***FYRSTA HÆÐ MEÐ AFNOT AF GARÐI***
Fasteignamat næsta árs 50.200.000.-SKEIFAN FASTEIGNASALA kynnir Grænás 3 snyrtilega og vel skipulagða 3-4 herberbergja íbúð á fyrstu hæð með afnotareit. Birt stærð 109.2 fm.Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson í s. 618-9999 tölvupóstur halldor@skeifan.isNánari lýsing eignar:Forstofa: Flísalagt gólf og gott skápapláss.
Baðherbergi: Er að mestu flísalagt, með sturtubaðkari, baðinnréttingu með ágætu skápaplássi, plássi fyrir þvottavél, opnanlegur gluggi.
Eldhús: Nýlegt plastparket, með nýlegri mjög rúmgóðri hvítir háglans og dökkgrári innréttingu frá ikea þar sem ofn og örbylgjuofn er í vinnuhæð, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, keramik helluborð með innbyggðri viftu.
Hjónaherbergi: Parketlagt, rúmgott, og með skápum.
Barnaherbergi: Eru skráð 2 en búið er að opna á milli herbergja. Þau eru parketlögð og fataskápur í öðru.
Stofa/borðstofa: Í sameiginlegu opnu og björtu rými þar sem gengið er út í sólstofu sem er með gólfhita og snýr í suðvestur. Gengið er út úr sólstofu út á steyptan pall. Flísar á sólstofu, parket á stofu/borðstofu.
Geymsla: Er innan íbúðar, dúkur á gólfi og hillur á 2 veggjum.
Bílastæði: Sameiginleg með Grænás 3a
Sameign: Vínildúkur á gólfum. Mjög snyrtileg og vel við haldið, í sameign er einnig hjólageymsla.
Að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurbætur verði gerðar á eigninni:Ný eldhúsinnrétting, tæki og parket á eldhúsi 2021.
Nýtt salerni, vaskur, skúffur og skápur 2020.
Nýr ofn í stofu 2023.
Nýr ofn í eldhúsi 2024.
Nýtt þak 2021.
Múrverk, sprungufyllt og málað 2020/2021.Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson fasteignasali í s. 618-9999 tölvupóstur halldor@skeifan.isKostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Skeifan fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.