Mánudagur 30. mars
Fasteignaleitin
Skráð 30. mars 2026

Hlíðarbyggð 38

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
205.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
179.900.000 kr.
Fermetraverð
876.279 kr./m2
Fasteignamat
142.200.000 kr.
Brunabótamat
103.850.000 kr.
Mynd af Þorbjörn Geir Ólafsson
Þorbjörn Geir Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2070463
Landnúmer
118695
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Ástand ekki vitað
Þak
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
                                                               *Aukaíbúð*-------*Endaraðhús*------*Frábær staðsetning*-----*Efst í botnlanga*------*Útsýni*-------*Gróinn garður*

Trausti Fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu virkilega fallegt og vel skipulagt 4-5 herbergja endaraðhús með aukaíbúð við Hlíðarbyggð 38 í Garðabæ. Húsið er frábærlega staðsett efst í botnlanga í miðjum Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Birt stærð eignar samkvæmt HMS er 205,3fm og þar af er bílskúr 61,1fm.
 
Nánari lýsing:
Anddyri er með fataskáp og flísum á gólfi.
Hol er með fataskáp og þaðan er gengið út á s-vestur verönd á skjólgóðan pall.
Eldhús er með ljósri innréttingu og góðum borðkrók. Úr eldhúsi er mikið og gott útsýni til norðurs. Flísar á gólfum.
Inn af eldhúsi er búr og þvottahús (endurnýjað 2013), sem er bjart og smekklega innréttað. Góð vinnuaðstaða. Flísar á gólfum.
Stofan er rúmgóð og björt með aukinni lofthæð.  Gluggar eru á þrjá vegu sem gefa því stofunni aukna birtu og afbragðs útsýni. Rýmið rúmar vel borðstofu og setustofu. Parket á gólfum
Á svefnherbergisgangi eru 3 herbergi,  tvö barnaherbergi (voru áður þrjú) og hjónaherbergi með eldri skápum með rennihurðum. Parket á gólfum.
Baðherbergið var endurnýjað 2014 á vandaðan máta með hlöðnum sturtuklefa, baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofni og hita í gólfi.  Flísar á gólfum.
Bílskúrinn er skráður 61,1 fm. Honum hefur verið skipt upp og er nú sér tæplega 30 fm. stúdíó-íbúð nýlega innréttuð. Sér inngangur, vel innréttuð snyrting og sturtuherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Í alrými er nett eldhúsinnrétting. Bílskúrinn sjálfur er með máluð gólf, heitu og köldu vatni og glugga með opnanlegu fagi.
 
Annað:
Eignin hefur almennt fengið gott viðhald
Garðurinn er gróinn og fallegur með göngustígum, lýsingu og skjólgóðum palli
Upphitað bílaplan er fyrir framan bílskúrinn
Næg bílastæði til viðbótar fyrir framan húsið
Rafmagn var yfirfarið, tenglar og rofar endunýjaðir með dimmerum á fyrir ca. 12 árum
Vatnslagnir endurnýjaðar að hluta
Þak málað 2020
Pallur stækkaður 2020 og gert ráð fyrir heitum pott
Tvö barnaherbergi sameinuð 2025
Múrviðgerðir á veggjum að utan og málað  2019
Steniklæðning er á húsinu sem er viðhaldslétt
 
Hér er um að ræða frábært fjölskylduhús með aukabúð góðum stað í Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/01/201651.500.000 kr.57.500.000 kr.205.3 m2280.077 kr.
10/07/201549.350.000 kr.55.000.000 kr.205.3 m2267.900 kr.Nei
05/03/201344.150.000 kr.47.000.000 kr.205.3 m2228.933 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurvellir 7
Skoða eignina Suðurvellir 7
Suðurvellir 7
230 Reykjanesbær
65.2 m2
Raðhús
211
765 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Einigrund 27
Skoða eignina Einigrund 27
Einigrund 27
300 Akranes
121.3 m2
Raðhús
413
711 þ.kr./m2
86.300.000 kr.
Skoða eignina Miðgarður 11
Bílskúr
Skoða eignina Miðgarður 11
Miðgarður 11
230 Reykjanesbær
304.3 m2
Fjölbýlishús
81
490 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Tómasarhagi 36
Tómasarhagi.jpg
Skoða eignina Tómasarhagi 36
Tómasarhagi 36
107 Reykjavík
295.7 m2
Hæð
834
727 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin