LIND fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgóða og bjarta þriggja herbergja, 91,6 fm íbúð við Bergþórugötu 23, 101 Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og iðandi mannlíf.
Eignin er skráð 91,6 fm skv. FMR, þar af er 7,5 fm geymsla og skiptist í anddyri, eldhús, samliggjandi borðstofu og stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Allar nánari upplýsingar veita Hrafn Valdísarson, löggiltur fasteignasali í síma 845-9888 eða hrafn@fastlind.is og Aníta Olsen Jóhannesdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 615-1640 eða anita@fastlind.isNánari lýsing:
Íbúðin er í kjallara götumegin en á jarðhæð garðmegin. Hægt er að ganga beint inn í íbúð frá garði.Anddyri með tvær tröppur sem liggja niður í alrými íbúðarinnar.
Eldhús er með innréttingu í viðarlit, ofn, helluborð og uppþvottavél. Gluggi er í eldhúsi og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu og opnu rými. Í stofunni eru fallegir gluggar með útgengi út í garð, verönd við stofuhurð.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Innrétting í viðarlit, speglaskápur og baðkar með sturtuaðstöðu. Gluggi í rýminu.
Sérgeymsla er skráð 7,5 fm, staðsett í kjallara hússins.
Sameiginlegt þvottahús í sameign.
Bergþórugata 23 er steinsteypt hús með bárujárnsklæddu hornlaga valmaþaki.
Um er að ræða fallega íbúð á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur, leik- og grunnskóli í göngufjarlægð og stutt í alla helstu þjónustu.
Framkvæmdir sem farið hefur verið í skv. seljanda:- 2022/2023: Skipt um allt parket árið 2022 en í báðum svefnherbergjum árið 2023.
- 2022: Eldhús gert upp.
- 2020/2021: Skipt um þakrennur
Allar upplýsingar um eignina veita:Hrafn Valdísarson, löggiltur fasteignasali í síma síma
845-9888 /
hrafn@fastlind.isAníta Olsen Jóhannesdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í síma
615-1640 /
anita@fastlind.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.