Miðvikudagur 15. apríl
Fasteignaleitin
Skráð 10. ágúst 2025

Hekluhraun 10

SumarhúsSuðurland/Hella-851
71.2 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
700.843 kr./m2
Fasteignamat
31.750.000 kr.
Brunabótamat
39.450.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2342318
Landnúmer
198150
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Varmadæla
Inngangur
Sérinngangur
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallegt og vel skipulagt 71,2 fm. sumarhús á einstökum stað á skipulögðu sumarhúsasvæði í Heklubyggð, Rangárþingi ytra.  Húsið stendur á 16.400 fm. eignarlóð með stórbrotnu útsýni, rétt við Selsundslæk.  Með Hekluhrauni 10 seljast lóðir við Svínhaga 1, stærð 9.300 fm. og Svínhaga 4, stærð 7.900 fm, þá samtals um 33.600 fm. jörð.

Húsið samanstendur af stóru og björtu alrými með stofu og eldhúsi, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. Svefnloft er fyrir ofan annað svefnherbergið. Allt efni á baðherbergjum frá Álfaborg og einnig blöndunartæki. Í eldhúsi eru vandaðar innréttingar frá Habitat.  Rennihurð í stofu er frá Marokkó. Kamína er í stofurými.  Hellulögð verönd er fyrir utan hús með rafmagnspotti. Húsið er hitað upp með varmadælu, hitavatnskútur er nýlegur. Mikið og gott útsýni er í allar áttir.

Lóðin er stór og gróin með mikla möguleika, heimilt er að stækka húsið. Samkvæmt skipulagsskilmálum eru byggingarreitir rúmir og heimilt að reisa tvö sumarhús á hverri lóð, þar sem því verður komið við þá allt að 200-300 fm.  Fjarlægð milli húsa innan lóðar skal vera minnst 20 m. en þó má gestahús vera nær. Hús skal vera staðsett í samráði við byggingarfulltrúa Rangárþings ytra.  Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi. Bílastæði eru staðsett á hverri lóð fyrir sig.


Einstök náttúrufegurð er á svæðinu, sést meðal annars í Heklu, Bjólfell og Búrfell.  Stutt inná hálendið, aðeins 1,5 klst. frá bænum og í Landmannalaugar frá húsi um 1 - 2 klst.

Sumarhúsafélag er í Heklubyggð, sem er hagsmunafélag sumarhúsaeigenda á svæðinu en viðhald vega innan svæðisins er meginverkefni þess auk þess sem haldin er fjölskyldusamkoma á vegum félagsins hverja verslunarmannahelgi.  Leiðarvísir: Þegar komið er að Svínhaga að sunnanverðu er farið inn á Rangárvallaveg (nr. 264) af Suðurlandsvegi austan Hellu. Vestan Gunnarholts er síðan farið inn á Þingskálaveg (nr. 268) sem liggur að Svínahaga. Góðar gönguleiðatengingar eru um allt svæðið, m.a. með Rangá og Selsundslæk.  

HÆGT ER AÐ SKOÐA SVÆÐIÐ Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

UPPLÝSINGAR UM SKIPULAGSSKILMÁLA FRÍSTUNDABYGGÐAR Í HEKLUBYGGÐ MÁ KYNNA SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 24 íb. 303
Bílastæði
Áshamar 24 íb. 303
221 Hafnarfjörður
66.6 m2
Fjölbýlishús
211
871 þ.kr./m2
58.000.000 kr.
Skoða eignina Gjúkabryggja 10-12 1
Gjukabryggja - Canva.jpg
Gjúkabryggja 10-12 1
110 Reykjavík
64.8 m2
Fjölbýlishús
211
921 þ.kr./m2
59.700.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabakki 2
Skoða eignina Tjarnabakki 2
Tjarnabakki 2
260 Reykjanesbær
71.6 m2
Fjölbýlishús
312
725 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Brekkugata 14 - 001
Opið hús:20. apríl kl 16:00-16:30
Brekkugata 14 - 001
600 Akureyri
77 m2
Fjölbýlishús
211
675 þ.kr./m2
52.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin