Miðvikudagur 6. maí
Fasteignaleitin
Opið hús:10. maí kl 13:00-13:30
Skráð 6. maí 2026

Hlaðhamrar 42

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
172.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
134.900.000 kr.
Fermetraverð
783.391 kr./m2
Fasteignamat
113.750.000 kr.
Brunabótamat
87.050.000 kr.
Mynd af Gunnar Biering Agnarsson
Gunnar Biering Agnarsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2038806
Landnúmer
109098
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað um nein vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um nein vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um nein vandamál
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Sjá lýsingu eignar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Borið hefur á leka frá baðherbergi. Unnið er að viðgerð.
Kvöð / kvaðir
Samkvæmt lóðarleigusamningi er óheimilt að selja bílskúr eða aðra aukabyggingur frá viðkomandi íbúðarhluta.
VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt endaraðhús, Hlaðhamra 42, 112 Reykjavík. 
Eignin er samtals 172,20 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Íbúðin er 144,50 m² að stærð og bílskúrinn er 27,7m².
Eignin er á tveimur hæðum og telur forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, sólskála, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og bílskúr. Neðri hæð er skráð 111 m² og efri hæð er skráð 33,5 m².
Hellulagt bílaplan við malbikaða innkeyrslu og snyrtileg aðkoma að húsinu.
Útgengt er frá sólstofu í skjólgóðan suðurgarð.
Frábær staðsetning innst í botnlanga með leik- og grunnskóla í göngufæri.

Sjá staðsetningu hér.


Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.


Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri 
með flísum á gólfi.
Komið er inn í hol sem leiðir að tveimur svefnherbergjum, alrými, baðherbergi/þvottahúsi og stiga upp á efri hæð. 
Svefnherbergin á jarðhæðinni eru tvö, bæði með tvöföldum fataskápum og gluggum til norðurs.
Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhús hefur verið opnað og komið var fyrir stórri eldunareyju með góðu skápaplássi, helluborði og yfir hangir loftháfur. Eldhúsinnrétting hefur sömuleiðis verið endurnýjuð, gott skápapláss, gert ráð fyrir vatnstengdum tvöföldum ísskáp, ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. 
Borðstofa/stofa eru með eldhúsi í opnu alrými. Upptekið loft, bjart og fallegt rými. Þar fyrir utan er 9 m² sólskáli en þaðan er útgengt í suðurgarð.
Baðherbergi og þvottahús voru áður tvö rými en milliveggur var feldur og rýmin sameinuð í eitt rúmgott baðhefbergi með þvottaaðstöðu. Rúmgóð walk-in sturta, upphengt wc, innrétting með handlaug, tengi fyrir þvottavél og pláss fyrir þurrkara bak við rennihurðar. 
Stigi upp á efri hæð er teppalagður. 
Efri hæð:
Hjónaherbergi er með lausum fataskápum, glugga til austurs og þakglugga. Inn af hjónaherbergi er mikil geymsla undir súð.
Svefnherbergi án fataskáps en þar er einnig þakgluggi.
Garður er á þrjá vegu enda um endahús að ræða. Bílastæði á lóð og við sameiginlega innkeyrslu.
Bílskúr með máluðu gólfi, rafmagnsopnari á bílskúrshurð. Geymsluloft yfir hluta bílskúrs. Útgengt út um gönguhurð á bak enda bílskúrs.

Gólfefni íbúðar eru:
Flísar á anddyri, sólskála og baðherbergi.
Parket á svefnherberjum, holi og alrými.

Nýlegar framkvæmdir telja m.a.:
Gólfhita komið fyrir á neðri hæð í anddyri, holi, alrými, sólskála og baðherbergi.
Gólf neðri hæðar flotuð. Flísar settar á anddyri, baðherbergi og sólskála. Parket á hol og alrými.
Veggur milli eldhúss og hol felldur. Innrétting endurnýjuð sem og tæki eldhúss.
Innihurðar endurnýjaðar.
Járn á þaki endurnýjað, pappi og hluti klæðningar. Farið var í þessar framkvæmd á allri raðhúsalengjunni á sama tíma. Þakgluggar hússins voru endurnýjaðir á sama tíma.
Sólskáli endurnýjaður að hluta. Gólfihita komið fyrir og gler endurnýjað.


Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/12/201640.300.000 kr.48.000.000 kr.172.2 m2278.745 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1997
27.7 m2
Fasteignanúmer
2038806
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.300.000 kr.

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Barðastaðir 13
Opið hús:11. maí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Barðastaðir 13
Barðastaðir 13
112 Reykjavík
100.4 m2
Fjölbýlishús
312
696 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 406
Opið hús:07. maí kl 16:30-17:00
VRayCam075.jpg
Skoða eignina Laugaborg 406
Laugaborg 406
105 Reykjavík
118.1 m2
Fjölbýlishús
312
1032 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Vallarbarð 12
Bílskúr
Opið hús:11. maí kl 16:15-16:45
Skoða eignina Vallarbarð 12
Vallarbarð 12
220 Hafnarfjörður
314.4 m2
Einbýlishús
8
433 þ.kr./m2
136.000.000 kr.
Skoða eignina Bríetartún 11
Opið hús:11. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Bríetartún 11
Bríetartún 11
105 Reykjavík
130.7 m2
Fjölbýlishús
423
994 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin