Miðvikudagur 29. apríl
Fasteignaleitin
Opið hús:03. maí kl 12:00-12:30
Skráð 29. apríl 2026

Skólagerði 64

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
189.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
136.900.000 kr.
Fermetraverð
721.286 kr./m2
Fasteignamat
129.500.000 kr.
Brunabótamat
90.850.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2065168
Landnúmer
115999
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gluggar voru málaðir árið 2020. . Skipt var um rúður í stofugluggum, sem voru upprunaleg, og settar þykkari rúður ásamt nýjum þéttilistum og glerlistum.
Þak
Í mars síðastliðnum var þakskoðun gerð þar sem járn þaks var metið í fínu lagi; álfellum var skipt út, strop klæddur og allar þakskrúfur endurnýjaðar. Fyrir afhendingu verður líka búið að grunna og mála þakið.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei, svölum var breytt í sólstofu/stækkun á hjónaherbergi líklega árið 1995 (teiknað í nóvember 1994)
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Tveir inngangar
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Vel staðsett 141,4 fm. parhús á tveimur hæðum í rólegu og eftirsóttu hverfi í Kópavogi, byggt árið 1964, byggður var sér 48,4 fm. bílskúr árið 2013. Samtals stærð er 189,9 fm. 

Eignin er á tveimur hæðum og státar af bjartri stofu, þremur svefnherbergjum, sér þvottahúsi og sér geymslu ásamt sérstæðum bílskúr sem byggður var árið 2013. Húsið hefur verið í góðu viðhaldi síðustu ár með áherslu á utanhússviðhald og endurbætur.

Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3D

Nánari lýsing / neðri hæð:
Komið er inn í forstofu er með dökkum flísum á gólfi og fataskápum með speglum. Útidyrahurðin var nýlega pússuð upp og borið á hana. Innangengt er í alrými hússins frá forstofu. Hurð þar á milli.
Stofa og borðstofa er í björtu og rúmgóðu alrými með parketi á gólfi og stórum gluggum sem veita góða birtu inn. Í stofu er arinn klæddur náttúrusteinum. og timburstigi upp á efri hæð hússins. 
Innangnegt er frá stofu/borðstofu inn í eldhús, þar er eldri viðar eldhús innrétting, flísar á gólfi og milli efri og neðri skápa. Þar er innbyggður bakaraofn, helluborð með viftu þar fyrir ofan og uppþvottavél þar við hlið.
Gluggi veitir birtu inn í rýmið og inn í borðkrók. Inn af borðkrók er sér þvottahús með flísum á gólfi og á hluta af veggjum, búið er að tengja og setja upp bæði salerni og sturtuklefa. Opnanlegur gluggi er á þvotahúsinu sem og útgengi út að hellulagða verönd með skjólveggju. 

Efri hæð:
Á efri hæðinni er gangur með parket á gólfi þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér geymsla. Gluggi veitir góða birtu inn og skápar eru í hinum enda þess. 
Hjónaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum. Herbergið var stækkað árið 1995, þegar byggt var yfir svalir, gluggar í þrjá áttir veita mikla og góða birtu inn.
Svefnherbergi II er með parketi á gólfi og glugga. Hentar vel sem barnaherbergi eða skrifstofa.
Svefnherbergi III er með parketi á gólfi og fataskáp. Gluggi veitir góða birtu inn.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu, salerni og innrétting með handlaug. Handklæðaofn þar á móti. Opnalegur gluggi er inn á baðherbergi.
Sér geymsla á efri hæð, er inn af baðherbergi. Gefur ýmsa möguleika.

Bílskúr: Sérstæður og rúmgóður bílskúr, byggður árið 2013. Bílskúrinn er með stórum hurðum, gluggum og góðri lýsingu og hentar vel sem vinnuaðstaða eða fyrir bíla.

Parhúsið stendur á stórri lóð með afgirtri verönd og nýlegum bílskúr. Bílastæði eru fyrir framan bílskúr. Útgengi er á hellulagða verönd að aftanverðu hússins. Svæðið er afgirt með skjólveggjum.

Eignin er staðsett á eftirsóttum stað í Kópavogi, í rólegri götu nálægt skóla og þjónustu. Góð aðkoma er að húsinu með nægum bílastæðum.

Viðhald og framkvæmdir: Eignin virðist hafa fengið gott viðhald og farið hefur verið í ýmsar framkvæmdir á síðustu árum, sérstaklega á ytra byrði hússins. Helstu framkvæmdir sem vitað er um. Árið 2020 var húsið og gluggar þess málað að utan. Í mars síðastliðnum var þakskoðun gerð þar sem járn þaks var metið í fínu lagi; álfellum var skipt út, strompur klæddur og allar þakskrúfur endurnýjaðar. Fyrir afhendingu verður búið að grunna og mála þakið. Skipt hefur verið um rúður í stofu, sem voru upprunaleg, og settar voru þykkari rúður ásamt nýjum þéttilistum og glerlistum, og glugginn málaður. Útidyrahurð var líka nýlea pússuð upp og borið á hana.

Vakin er athygli á því að þar sem um dánarbú er að ræða hafa seljendur takmarkaðar upplýsingar um ástand hússins umfram það sem fram kemur í gögnum.

Nánari upplýsingar veita: Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / gunnar@remax.is Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500
af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-








 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2013
48.4 m2
Fasteignanúmer
2065168
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.550.000 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurbrú 18 - 215
Bílastæði
Austurbrú 18 - 215
600 Akureyri
139.9 m2
Fjölbýlishús
423
872 þ.kr./m2
122.000.000 kr.
Skoða eignina Frakkastígur 8C
Frakkastígur - Canva - 149.9.jpg
Skoða eignina Frakkastígur 8C
Frakkastígur 8C
101 Reykjavík
130 m2
Fjölbýlishús
423
1150 þ.kr./m2
149.500.000 kr.
Skoða eignina Kolagata 1
_6__7868.jpg
Skoða eignina Kolagata 1
Kolagata 1
101 Reykjavík
125.1 m2
Fjölbýlishús
423
1038 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Eikardalur 6
Bílskúr
Skoða eignina Eikardalur 6
Eikardalur 6
260 Reykjanesbær
257.5 m2
Einbýlishús
524
531 þ.kr./m2
136.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin