Miðvikudagur 30. september
Fasteignaleitin
Skráð 30. sept. 2026

Naustabryggja 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
182.9 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
101.900.000 kr.
Fermetraverð
557.135 kr./m2
Brunabótamat
106.930.000 kr.
Byggt 2002
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
226176012
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

"FRÁBÆRT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST STÓRA FJÖLSKYLDU ÍBÚÐ Á FRÁBÆRU VERÐI " FASTEIGNAMAT 2027 VERÐUR 113.750.000 kr.

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir bjarta og vel skipulagða fimm herbergja 182,9 m2 íbúð á tveimur hæðum ásamt stæði í bílageymslu við Naustabryggju 12 í bryggjuhverfi Grafarvogs. Stórar stofur, þrjú svefnherbergi , þvottahús og tvö baðherbergi. Mikil og glæsileg lofthæð, tvennar svalir og stórir gluggar á alrými  sem gefur góða birtu inn í íbúðina.


Íbúðin er í heild skráð 182,9 m2 skv FMR, þar af er 4,5 m² geymsla í sameignargangi.
Einnig er rúmgott mjög vel staðsett stæði í bílageymslu.


Á neðri hæð er anddyri, baðherbergi, þvottahús, tvö svefnherbergi, gott alrými sem er stórt eldhús og stórt stofurými með hurð út á suðursvalir með útsýni í suðaustur. Veglegur steyptur stigi er upp á efri hæð sem skiptist í gott stórt sjónvarpshol, ógert baðherbergi með geymslulofti, og hjónaherbergi sem hægt er að útbúa fataherbergi.  Mikil lofthæð er á efri hæðinni og hurð út á suðursvalir.

Lýsing eignar- neðri hæð
Anddyri með fatahengi og gráum flísum á gólfi
Stofa/borðstofa í rúmgóðu parketlögðu rými með mikilli lofthæð og stórum suðurglugga, útgengi er út á svalir til suðurs.
Eldhús er opið inn í stofu, flísar á gólfi, filmuð L-laga innrétting með granít borðplötu, helluborði, háfi og ofni í borðhæð.  Flísar eru frá borðplötu og upp í loft.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svefnerbergi - Innst á herbergisgangi með stórum hornglugga sem nær að gólfi, parket á gólfi.
Svefnherbergi -Innarlega á gangi á vinstri hönd með gólfsíðum glugga.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Gegnheilt handgert parket frá Agli Árnasyni eru á gangi, stofu og borðstofu, flísar í anddyri og eldhúsi.

Efri hæð.
Stigi liggur úr stofu upp á efri hæð, steinteppi á þrepum.
Sjónvarpsstofa er í aðalrými, mikil lofthæð og stór suðurgluggi, steinteppi á gólfi. Útgengi er út á suðursvalir.
Hjónaherbergi er við norðurenda, mjög rúmgott herbergi með möguleika á að útbúa fataherbergi.
Baðherbergi efri hæðar er óinnréttað og nýtt í dag sem geymsla. Yfir baðherberginu er geymsluloft með ágætri lofthæð.

Í sameign hússins er sérgeymsla íbúðar og tvær sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur.
Bílastæði í bílageymslu með góðu aðgengi
.Búið er að leggja grunninn fyrir rafhleðslustöð.

Eignin er 99,4 m2 íbúð, eining 0302 á 3.hæð, 79,0 m2 íbúðarhluti á 4.hæð, eining 0402 og 4,5 m2 geymsla, eining 0009 í kjallara.

Nánasta umhverfi:
Staðsetning eignarinnar er á góðum stað við opið leiksvæði innan hverfisins. Stutt í leikskóla og skóla í Hamrahverfi Grafarvogs. Góðar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (60)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fiskakvísl 1
Hleðslustöð
Skoða eignina Fiskakvísl 1
Fiskakvísl 1
110 Reykjavík
172.3 m2
Fjölbýlishús
514
650 þ.kr./m2
112.000.000 kr.
Skoða eignina Básbryggja 45
Bílskúr
Opið hús:03. okt. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Básbryggja 45
Básbryggja 45
110 Reykjavík
232.6 m2
Raðhús
734
610 þ.kr./m2
141.800.000 kr.
Skoða eignina Eyjabakki 22
Skoða eignina Eyjabakki 22
Eyjabakki 22
109 Reykjavík
65.6 m2
Fjölbýlishús
312
776 þ.kr./m2
50.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 130
Hleðslustöð
Skoða eignina Hraunbær 130
Hraunbær 130
110 Reykjavík
91.3 m2
Fjölbýlishús
312
700 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin