Þriðjudagur 10. mars
Fasteignaleitin
Skráð 16. apríl 2025

Vörðubrúnir 10

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
64.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
38.500.000 kr.
Fermetraverð
593.220 kr./m2
Fasteignamat
36.600.000 kr.
Brunabótamat
43.000.000 kr.
Mynd af Ævar Örn Jóhannsson
Ævar Örn Jóhannsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2279671
Landnúmer
190164
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd með heitum potti
Upphitun
Hitaveita / ofnar
Inngangur
Margir inngangar
-Verönd í kringum bústaðinn með heitum potti og útsýni til fjalla
-Snyrtileg aðkoma og gott næði
-Rétt rúmlega klukkutíma akstur frá höfuðborgarsvæðinu
-Golfvellir, gönguleiðir, Gullfoss og Geysir


Sumarbústaðurinn er skráður 64,9 fm hjá HMS, á leigulóð í Úthlíðarskógi í Biskupstungum. 
Tvö svefnherbergi eru á jarðhæð.
16 fm svefnloft á annarri hæð er undir súð og er mældur heildar gólfflötur bústaðarins rúmir 73 fm.
Auk þess fylgja tveir u.þ.b. 10 fm timburskúrar á lóðinni.
Annar er upphitaður og væri hæglega hægt að nýta hann sem gestahús með svefnaðstöðu - þó báðir séu notaðir sem geymslur sem stendur.
Panel veggir bústaðarins eru hvíttaðir.
Allt gólf er flísalagt að undanteknu svefnlofti og svefnherbergjum þar sem parket er á gólfum.

Bústaðurinn er klæddur að utan með liggjandi timbur klæðningu.
Málað bárujárn er á þaki.
Hann er í góðu ástandi og hefur fengið gott viðhald.
Steyptir dregarar eru undir húsi en steyptar undirstöðusúlur undir palli.

Á svæðinu er hitaveita og einnig eru öryggishlið sem hindra óviðkomandi aðgang. Þau opnast með símhringingu.

Fallegt og víðáttu mikið útsýni er úr bústaðnum, bæði yfir nærsveitir og til fjalla. Fyrir ofan húsið er Miðfell og Högnhöfði.

Þjónusta:
-Verslunarþjónusta er á svæðinu og einnig veitingarstaðurinn Réttin
-Laugarvatn, Laugarás og Flúðir í 15-20 mínútna fjarlægð
-Efstidalur í næsta nágrenni

Afþreying og náttúra:
-Golfvöllur beint fyrir neðan bústaðabyggð
-Sundlaugar og baðstaðir skammt undan
-Gullfoss og Geysir í 10 og 20 mínútna fjarlægð
-Brúará og Brúarfoss í 5 mínútna fjarlægð
-Hestaleiga
-Fjölmargar gönguleiðir og stutt í hálendið fyrir fjórhjól og fleira

Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.is


Nánar um bústaðinn:
Gengið er inn í forstofu með góðu upphengi.
Beint inn af henni er rúmgott búr með veggföstum hillum.
Á vinstri hönd er gangur með tveimur herbergjum.
Bæði svefnherbergin eru með opnanleg fagi með flugnaneti fyrir.
Í enda gangsins er baðherbergi með opnanlegu fagi. Inn á baði er tengi fyrir þvottavél, hilla og skápapláss. Það er einnig útbúið sturtuklefa, ofni og handklæðaofni, vaskinnréttingu með skápaplássi, salerni og spegli.
Úr baðherbergi er útgengt út á pall þar sem heitur pottur er.
Eldhús og stofa eru sameinuð í bjart alrými með rúmlega fjögurra metra lofthæð og upphengda viftu.
Eldhúsinnrétting er hvít, bæði efri og neðri skápar, með bakaraofni, helluborði og viðarborðplötu.
Við enda innréttingar er stigi upp á svefnloft, með opnanlegum útsýnis glugga á gafli. Það er útbúið sem þriðja svefnherbergið.
Úr alrými eru svaladyr sem opnast út á timburverönd með fallegu útsýni.

-Á svæðinu er sumarhúsafélag og er árgjaldið 16.000 kr.
-Nánast allt innbú getur fylgt með í kaupunum eftir samkomulagi, hafi kaupandi áhuga á því.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 16 (105)
Hnjúkamói 16 (105)
815 Þorlákshöfn
50.7 m2
Fjölbýlishús
211
886 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16
Skoða eignina Hnjúkamói 16
Hnjúkamói 16
815 Þorlákshöfn
50.9 m2
Fjölbýlishús
211
882 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Öldubyggð 24
Öldubyggð 24.jpg
Skoða eignina Öldubyggð 24
Öldubyggð 24
805 Selfoss
52.4 m2
Sumarhús
312
628 þ.kr./m2
32.900.000 kr.
Skoða eignina Hálönd - Hvassaland 5
Hálönd - Hvassaland 5
601 Akureyri
108.7 m2
Sumarhús
413
828 þ.kr./m2
90.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin