Mánudagur 9. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 9. nóv. 2026

Lindargata 28

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
51.2 m2
1 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
55.900.000 kr.
Fermetraverð
1.091.797 kr./m2
Fasteignamat
56.600.000 kr.
Brunabótamat
36.050.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 2016
Jarðhæð af 5
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2352864
Landnúmer
101056
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sérafnotkunarreitur
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Nýleg 2ja herbergja íbúð með sérinngangi, 19,5 fm sérafnotkunarreit með palli og skjólvegg að Lindargötu 28 í Reykjavík. Eignin er skráð 51,2 fm. og skiptist í anddyri/forstofu, svefnherbergi, baðherbergi og alrými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu. Á jarðhæð er sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Komið er inn um sérinngang að flísalagðri forstofu/hol með fatahengi.
Eldhús: Falleg nýleg innrétting með viðarinnréttingu, góðu vinnuplássi og dökkri plötu á borðum. Bakaraofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Gott pláss fyrir borðstofuborð. Harðparket á gólfi. 
Stofa: Rúmgóð stofa í björtu rými með harðparketi á gólfi. Útsýni út að sérafnotkunarrreit og í átt að sameiginlegum garði.
Svefnherbergi: Gott svefnherbergi með þreföldum loftháum fataskápum og harðparketi á gólfi. Frá svefnherbergi er útgengt á sérafnotkunarreit með palli.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt og búið innréttingu með handlaug, neðri skúffum, efri skáp og spegli með innbyggðri lýsingu. Upphengt salerni og sturta með hertu gleri. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Garður/Sérafnotkunarreitur: Góður 19,5 fm sérafnotkunarreitur með palli og skjólvegg.
Sérgeymsla: Í kjallara sameignar er sérgeymsla (skráð 6 fm.). Einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á mjög vinsælum stað í Reykjavík. Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu er vandfundin. Góðar samgönguæðar tengja hverfið við alla staði borgarinnar og stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/06/202656.600.000 kr.53.000.000 kr.51.2 m21.035.156 kr.Já
08/10/202034.850.000 kr.37.000.000 kr.51.2 m2722.656 kr.Já
09/02/20163.390.000 kr.31.150.000 kr.51.2 m2608.398 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lágaleiti 11
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Lágaleiti 11
Lágaleiti 11
103 Reykjavík
65,4 m2
Fjölbýlishús
211
1038 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 50
Efsta hæð
Skoða eignina Kleppsvegur 50
Kleppsvegur 50
105 Reykjavík
102,4 m2
Fjölbýlishús
513
683 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ægisgata 5
Bílastæði
Opið hús:11. nóv. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Ægisgata 5
Ægisgata 5
101 Reykjavík
91,7 m2
Fjölbýlishús
21
871 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Þangbakki 10 7 hæð
Þangbakki 10 7 hæð
109 Reykjavík
70 m2
Fjölbýlishús
211
813 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin