Valhöll fasteignasala kynnir nýlega og fallega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) í Lágaleiti 11 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 65,4 fm að stærð og þar af er geymslan 16,6 fm. Húsið er álklætt að utan með fallegri klæðningu og viðhaldslétt.
Góð staðsetning miðsvæðis í Reykjavík. Frábær fyrstu kaup.
Íbúðin er björt með ljósum innréttingum og rúmgóðum suðursvölum.
Þetta er falleg íbúð sem vert er að skoða.
Bókið skoðun hjá Óskari H. Bjarnasen fasteignasala / lögfræðingi í gegnum netfangið oskar@valholl.is eða í síma 691-1931.
Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 65.4 fm, flatarmál íbúðarrýmis er 48,8 fm og flatarmál geymslu merkt 00-04 er 16,6 fm. Stæði í bílageymslu merkt 05-B07 fylgir íbúðinni. Svalir út frá stofu eru skráðar 6,1 fm. Íbúðin skiptist í : Anddyri,eldhús, alrými, 1 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu / og sérþvottahús.
Nánari lýsing:
Anddyri: með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: með hvítri innréttingu, speglaskáp yfir vaski, sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og flísum á gólfi og veggjum.
Eldhús: í opnu alrými með stofu með hvítri innréttingu með góðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og parketi á gólfi.
Stofa: í opnu alrými með eldhúsi með parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðar suður svalir.
Svefnherbergi: rúmgott með miklu skápaplássi og parketi á gólfi.
Geymsla: 16,6 fm sérgeymsla í sameign.
Nánari upplýsingar veitir:
Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögfræðingur í síma 691-1931 eða í tölvupósti á netfangið oskar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.