Domusnova og Soffía Sóley Magnúsdóttir lögg.fasteignasali s. 846-4144 kynna: Leynisbraut 29, Akranesi.
Um er að ræða parhús á einni hæð, íbúð 102,6 fm. og bílskúr 32,8 fm.
Hellulögð stétt að húsi.
Góð forstofa, skápar, flísar á gólfi, gólfhitalögn.
Eldhús með viðarinnréttingu sem búið er að mála. Búið að endurnýjað borðið í innréttingunni og setja sama efni milli skápa. Endurn. tæki og borð.
Stofa, borðstofa, gangur og herbergi með samfelldu parketi á gólfum.
Gengið út á stóran sólpall úr stofu,
3 svefnherbergi, skápar í tveimur herbergjum. Fjórða herbergið (ca 12 fm) hefur verið innréttað inni í bílskúr, vinildúkur á gólfi. (ekki skráð hjá HMS)
Baðherbergi með góðri innréttingu, sturtu, flísum á gólfi og veggjum að hluta, gólfhitalögn. Var endurnýjað 2022.
Innangengt í bílskúr í gegnum þvottaherbergi.
Þvottaherbergi með flísum á gólfi og góðri innréttingu.
Sólpallurinn er með heitum potti og yfirbyggðu "grillskýli" . Læstur með hliðum. Byggður úr lerki 2021-2022.
Bílskúr er frágenginn. Flísar á gólfi,(gólfhitalögn) fjarstýrður bilskúrshurðaopnari. Gott geymsluloft. 2 göngudyr, önnur út í bakgarð ( þar sem er geymsluskúr) og hin við hlið bílskúrshurðar að framanverðu.
Hitastýring fyrir heitan pott er staðsett í bílskúr. Varmaskiptir.
Steypt bílaplan. Hiti í innkeyrslu ( bíllengd frá húsi ) og hellulagðri stétt fyrir framan inngang að húsi.
Endurnýjað: Gler í stofu 2019. Gler í baðherbergi 2022. Gler í anddyri og hurðum á bílskúr 2023. Tenglar og rofar 2020.
Tæki, vaskur og borðplata í eldhúsi 2021. Húsið var málað að utan 2025.
Nánari upplýsingar veitir:
Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali s. 846-4144: soffia@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.