Hafðu samband og bókaðu skoðun. Get sýnt allar óseldar íbúðir með skömmum fyrirvara: Brynjar Þór Sumarliðason, löggiltur fasteignasali simi 896-1168, brynjar@eignamidlun.is
Íbúðin:Vesturgata 66, Vesturvin V3 íb 103 merkt 01-03 er 65.0 fm, 2 herb. Alrými telur stofu og eldhús með eldunareyju. Eitt svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Veröns frá stofu til norðurs inn í garðinn og sérgeymslu í kjallara. Innréttingaþema íbúðar er Blámi. Íbúðin er tilbúin til afhendingar.Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um verkefniðSmellið hér til að fá söluyfirlit sent straxOpinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er
65.0 fm, með sérgeymslu í sameign sem er merkt 00-12, skráð 7,4 fm.
Hönnunarþema er Blámi.
Vesturvin
Vesturvin er nýr yndisreitur í uppbyggingu í Vesturbæ Reykjavíkur. Reiturinn sem áður hét Héðinsreitur er glæsilegt kennileiti sem auðgar borgina og bætir lífsgæði íbúanna.
Mikill metnaður hefur verði lagður í íbúðirnar á yndisreitnum Vesturvin. Það lýsir sé meðal annars í góðu innra flæði íbúða og vönduðu efnisvali í alla staði. Meðal helstu kostum íbúðanna má nefna:
- Hágæða ítalskar innréttingar frá Cassina
- Borðplötur úr steini
- Gólfsíðir gluggar
- Gólfhiti
- Þaksvalir í mörgum íbúða
- Möguleiki á heitum potti fyrir hluta af íbúðum
- Vönduð heimilistæki frá Miele og Siemens
- Sér baðherbergi inn af svefnherbergi í stærri íbúðum auk fataherbergja.
- Gestasnyrting í fjölmörgum íbúðum
- Sér þvottahús í flestum þriggja herbergja íbúðum og stærri
- Einkabílastæði í bílakjallara fylgir mörgum íbúðum
Hönnun.
Fengnir hafa verið traustir og reynslumiklir aðilar til að sjá um framkvæmd verkefnisins og verkfræðihönnun. Jáverk ehf. mun byggja húsin og verkfræðistofurnar Mannvit og Verkhönnun sjá um verkfræðihönnun.
Mikil vinna hefur verið lögð í flæði íbúða og val á innréttingum sem spegla listrænan metnað í verkefninu sem heild.
Ítölsku innanhússhönnuðirnir hjá Studio Marco Piva hafa hannað þrjú þemu fyrir innri frágang íbúðanna sem sækja innblástur í íslenska landslagið, hugtökin eru Eimur, Sær og Blámi. Hönnuninni er ætlað að skapa einstakan lífstíl sem sameinar íslenskan arkitektúr og ítalska innanhúshönnun og glæsilegan og vandaðan hátt.
Útsýni
Stórkostlegt útsýni verður úr mörgum íbúðum við Ánanaust yfir Faxaflóann, Esjuna og Snæfellsnes. Af efri hæðum íbúða við Vesturgötuna verður skemmtilegt útsýni yfir gamla vesturbæinn.
Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar:
Brynjar Þ. Sumarliðason 896-1168 brynjar@eignamidlun.isKjartan Hallgeirsson 824-9093 kjartan@eignamidlun.is
Ólafur H. Guðgeirsson 663-2508 olafur@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson 867-0968 unnar@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 lilja@eignamidlun.is