Fasteignasalan Hvammur - 466 1600
Hörg / Eyrargata 4 - Fallegt og mikið endurnýjað 6 herbergj einbýlishús á tveimur hæðum við Svalbarðstjörnina á Svalbarðseyri - stærð 209,8 m²
Um er að ræða tvílyft einbýlishús með skráð byggingarár 1944 en á árunum 2004-2005 fóru fram gagngerðar endurbætur á húsinu og meðal annars byggð hæð ofan á. Auk þess var húsið klætt að utan, rafmagns- og vatnslagnir endurnýjaðar, gólfhiti settur í forstofu, geymslu og á baðherbergi, skipt um glugga og settir upp nýjir ofnar. Húsið var svo allt endurinnréttað að innan, gólfefni, veggir, hurðir og innréttingar.Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð 114,0 m²: Forstofa, gangur, baðherbergi, svefnherbergi eldhús, borðstofa, stofa og geymsla/herbergi.
Efri hæð 95,8 m²: Sjónvarpshol, tvö barnaherbergi, þvottahús og hjónaherbergi með baðherbergi inn af.
Forstofa er með flísum á gólfi, gólfhita og hvítum fataskápum. Úr forstofunni liggur parketlagður timbur stigi upp á efri hæðina. Hitalagnir eru í stétt fyrir framan forstofuhurðina.
Eldhús hefur verið endurnýjað. Svört innrétting með ljósri bekkplötu og flísum á milli skápa og eyja sem hægt er að sitja við. Ljóst harð parket er á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými þar sem ljóst harð parket er á gólfi og gluggar til þriggja átta. Úr borðstofu er gengið út á steypta verönd með útsýni út á fjörðinn og úr stofunni er tvöföld hurð út á timbur verönd sem er með suðurhlið hússins.
Baðherbergi er á neðri hæðinni er með flísum á gólfi og veggjum, spónlagðri mahony innréttingu, upphengdu wc, sturtuklefa og opnanlegum glugga. Lagnir eru til staðar til að koma fyrir þvottavél.
Geymsla er til hliðar úr forstofunni og þar eru flísar á gólfi og tvöfaldur fataskápur. Hiti er í gólfi. Möguleiki er nota þetta rými sem fimmta svefnherbergið.
Svefnherbergin eru fjögur, öll mjög rúmgóð. Á neðri hæðinni er harð parket á gólfi og mjög góður spónlagður mahony fataskápur. Barnaherbergin á efri hæðinni eru bæði með planka parketi á gólfi og innfelldri lýsingu. Hjónaherbergið er rúmgott, með harð parketi á gólfi, innfelldri lýsingu og hurð út á skemmtilegar svalir með útsýni út á fjörðinn. Inn af hjónaherberginu er rúmgott
baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, baðkari, sturtuklefa, upphengdu wc og innréttingu, hvíttuð spónlögð eik.
Sjónvarpshol er mjög rúmgott, með planka parketi gólfi og innfelldri lýsingu.
Þvottahús er með planka parketi á gólfi og góðum opnanlegum glugga. Í loftinu er fellistigu upp á geymsluloft.
Kaldar geymslur: Við hliðina á forstofu er köld geymsla, einnig er önnur köld geymsla á steyptu veröndinni.
Annað- Ljósleiðari er tilbúin til notkunar.
- Góð timbur verönd er með suðurhlið hússins.
- Samkvæmt lóðarleigusamningi er heimilt að byggja bílskúr á lóðinni.
- Eignin er í einkasölu