VALBORG fasteignasala og ráðgjöf kynnir í einkasölu einbýlishús við Breiðumörk 9, 810 Hveragerði.
Um er að ræða vel staðsetta eign, við aðalgötu Hveragerði.
Húsið er samtals 152,2 m² m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Húsið telur forstofu, stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, stórt eldhús og bílskúr.
Tveir inngangar eru í eignina. Auðvelt að breyta í tvær íbúðir.
Lóðin er 830,0 m² að stærð, vel gróin.
Sjá staðsetningu hér:
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Nánari lýsing: Forstofa með parket á gólfi. Gengið er frá forstofu inn í stofu til hægri og svefnherbergi til vinstri.
Stofa með parket á gólfi, björt með gluggum til austurs og suðurs.
Þrjú svefnherbergi eru í eigninni og er eitt þeirra notað sem sjónvarpsherbergi í dag.
Baðherbergin eru tvö, annað þeirra er með baðkari, innréttingu með handlaug og salerni en hitt er nýrra með sturtu.
Eldhús er rúmgott en þar er ljós innrétting með efri og neðri skápum/skúffum. Ísskápur með frysti er innbyggður í innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, uppþvottavél og ágætt vinnupláss.
Frá eldhúsi er gengið inn í annan af tveimur inngöngum í eignina. Þar er fatahengi og flísalagt gólf.
Þaðan er gengið inn í
svefnherbergi og inn af því er
baðgerbergi/þvottahús.Baðherbergið er flísalagt, þar er "walk-in" sturta, upphengt salerni, innrétting með handlaug og handklæðaofn.
Góð innrétting með
plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skápa og gott skúffupláss.
Frá síðari forstofu er innangengt í
bílskúr en hann er óklæddur og frekar hrár.
Nánari upplýsingar veita:Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur
elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur
gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.