Háhlíð 4A – Rúmgóð og falleg eign í tvíbýlishúsi í Glerárhverfi, Akureyri, einstök staðsetning m.t.t. skóla og leikskóla.
Heildarstærð eignar: 221,7 fm
Bílskúr: 35 fm með geymslulofti
Lýsing eignar
Arnar Guðmundsson fasteignasali og Fasteignasala Akureyrar kynna til sölu rúmgóða og vel staðsetta eign í tvíbýlishúsi í grónu hverfi á Akureyri.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og státar af einstöku útsýni yfir Vaðlaheiði, Eyjafjörð, Kaldbak, Súlur og Hlíðarfjall.
Háhlíð 4A er stór og vel skipulögð eign í virðulegu tvíbýlishúsi í grónu og vinsælu hverfi á Akureyri. Heildarstærð eignarinnar er 221,7 fm og fylgir henni 35 fm stakstæður bílskúr með geymslulofti (bílskúrinn er samliggjandi bílskúr Háhlíð 2).
Eignin spannar efri hæð og hluta jarðhæðar og hefur á síðustu árum verið mikið endurnýjuð, sérstaklega á neðri hæð. Þar má finna tvö svefnherbergi, skrifstofurými, nýtt baðherbergi með stóru baðkari og innréttingu, og nýtt Hydrocork parket á allri hæðinni. Gólf voru flotuð og sett nýtt gólfhitakerfi ásamt því að allar lagnir (rafmagn, vatn og fráveita) hafa verið endurnýjaðar. Nýjar hurðir eru á hæðinni og lýsing og rofar frá Rönning. Loft eru öll spörsluð og máluð með hágæða málningu. Inn af sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni, og anddyri ásamt tækjarými er sameiginlegt fyrir húsið.
Efri hæðin er björt og rúmgóð, með forstofu sem hefur sérsmíðaðar innréttingar (upprunalegar) og glerlistaverk í fallegri útidyrahurð. Eldhúsið er samsett úr stökum einingum að ítalskri fyrirmynd í dag – lausn sem býður upp á góða nýtingu og sveigjanleika þar til sett verður upp nýtt eldhús. Rýmið opnast inn í borðstofu og samliggjandi stofur með uppteknum loftum sem eykur glæsileika stofurýma sem eru aðskilin með hlöðnum arni. Frá stofu og borðstofu er aðgengi að tvennum svölum – rúmgóðum í austur og minni í suður. Úr öllum helstu rýmum er frábært útsýni.
Svefnherbergi á efri hæð er rúmgott hjónaherbergi, möguleiki er að breyta hluta stofurýmis í aukaherbergi. Baðherbergið á hæðinni er með sturtuklefa, vaskaskáp og tengi fyrir þvottavél. Loftaplötur hafa verið fjarlægðar á hæðinni, loftin heil spörsluð og máluð hvít. Stór hluti veggja og ofna hefur einnig nýverið verið málaður.
Lóðin er fallega gróin og einkennist af miklu næði og góðri sólarstefnu. Steypt sólarverönd er við aðalinngang og bílaplan er við bílskúrinn. Tvö stæði fylgja eigninni.
- Húsið nýlega málað
- Þak í góðu ástandi eftir bestu vitund0
- Þrefalt gler í gluggum (tvöfalt í opnanlegum fögum)
- Fallegur og gróinn garður með stórri sólarverönd og miklu næði
Fyrir liggja nýjar teikningar og eignaskiptayfirlýsing fyrir húsið sem er í dag tvær samþykktar íbúðir.
Staða endurbóta
Á efri hæð hefur eldhús verið opnað í alrými
Frágangur rafmagns og lofta uppfærður
Veggir og ofnar á stórum hluta efri hæðar nýlega málaðir
Falleg eign í rólegu og eftirsóttu hverfi með stórbrotnu útsýni og miklum möguleikum.