Verð miðast við 75% kaupGlæsileg og vönduð 3ja herbergja íbúð á
4. hæð í Valshlíð 1.
Íbúðin er með
tveimur svefnherbergjum, rúmgóðu alrými, þvottaherbergi og útgengi á
tvennar svalir.
Hlutdeildarkaup
Þarf eingöngu 10% útborgun
75% verð íbúðar er: 88.425.000 kr.
8.842.500 kr. í útborgun mv. 10% eigið fé
Fullt verð á íbúðinni er: 117.900.000 kr.
Birt stærð er
107,0 fm,
Hönnunarþema íbúðar er Mói 2.
Nánari lýsing:Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Frá alrými er útgengt á tvennar svalir sem auka notagildi íbúðarinnar og gefa góða birtu. Geymsla í kjallara fylgir íbúðinni.
S8 Sameign / Hlutdeildarkaup (75/25)Ath. verð og fermetraverð miðast við kaup á 75% eignarhlut (Hlutdeildarkaup). Kaupandi hefur afnot af íbúðinni eins og 100% eigandi. S8 ehf. á 25% eignarhlut og kaupandi hefur kauprétt til að kaupa þann hlut út. Engin leiga/afnotagjald greiðist af 25% hlutnum fyrstu 36 mánuði ef hlutur S8 er keyptur út innan 36 mánaða frá afhendingu, skv. samningi. Ef kaupréttur er nýttur innan 36 mánaða miðast kaupverð 25% hlutans við verð á kaupdegi ásamt verðbótum skv. samningi.
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.