Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna: *** AFAR GÓÐ FYRSTU KAUP ***Eignin Trönuhjalli 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-5636, birt stærð 64.4 m
2.
Vel viðhaldin 64,4m
2 - 2ja herbergja íbúð á annarri hæð (íbúð nr.202), í vel viðhöldnu fjölbýli. Sameiginlegur inngangur. Stigagangur, forstofa, gangur, stofa, borðstofa, svalir, baðherbergi, eldhús, sérgeymslu í sameign, sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla. Afar vel rekið húsfélag og vel viðhaldið fjölbýli með mikið af sameiginlegum bílastæðum. Þak hússins var yfirfarið fyrir 2-3 árum síðan, húsveggir og gluggar eru í góðu ásigkomulagi. Eldhúsinnrétting nýlega málu og tengi sett upp fyrir uppþvottavél. Nýr dyrasími. Gólfefni íbúðar - viðarparket og vinyl.
Fáðu söluyfirlit hér.ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.ISNánari lýsing eignar:
Inngangur: Sameiginlegur og snyrtilegur inngangur inn í fjölbýlishúsið með nýjum dyrasíma.
Stigagangur. Snyrtilegur og vel viðhaldinn.
Forstofa. Fataskápur og parket á gólfi.
Hol. Parket á gólfi.
Stofa. Björt og rúmgóð stofa, parket á gólfi. Suðursvalir.
Borðstofa. Rúmgóð borðstofa.
Eldhús. Bjart og fallegt eldhús með gluggum. Nýlega máluð eldhúsinnrétting. Gott skápapláss. Tengi fyrir uppþvottavél. Helluborð, bakaraofn í vinnuhæð. Vinyl á gólfi.
Baðherbergi. Afar snyrtilegt og gott baðherbergi með baðkari m/sturtu, handklæðaofni og fallegri innréttingu með speglaskápi.
Geymsla. Rúmgóð sérgeymsla með góðri lofthæð í sameign.
Umhverfi. Góð staðsetning í grónu hverfi. Trönuhjalli er miðsvæðis í suðurhlíðum Kópavogs, með leik- og grunnskóla í göngufæri og fjölbreytta verslun og þjónustu í nágrenninu. Þá býður Kópavogsdalur upp á skemmtilega útivistarmöguleika fyrir þá sem vilja njóta gönguferða og hreyfingar í grænu umhverfi. Það er nefnilega gott að búa í Kópavogi.
Nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson Löggiltur fasteignasali., í síma 623-1717, tölvupóstur svavar@fstorg.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.