FS fasteignir – 571-9992Hamragerði 19, 600 AkureyriUm er að ræða 117,9 m
2 5 herbergja einbýlishús auk 32 m
2 bílskúr á frábærum stað á Brekkunni á Akureyri.
Húsið stendur á stórri 750 m
2 lóð sem bíður uppá mikla möguleiga.
Húsið skiptist í anddyri, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, stofu/borðstofu, gestasnyrtingu, eldhús með borðkrók, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing:
- Anddyri: er með dúk á gólfi, fataskápur.
- Herbergi: er inn af anddyri, þar er teppi á gólfi og gluggi til austurs.
- Gangur: Teppi á gólfi, inn af ganginum er baðherbergi og þrjú svefnherbergi, gluggi til vesturs sem horfir út í garð.
- Baðherbergi: Er með dúk á gólfi, gluggi til austurs, salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
- Svefnherbergin: eru þrjú, hjónaherbergi og tvö minni herbergi.
- Hjónaherbergi: Er með teppi á gólfi, stórum fataskáp og glugga til austurs.
- Svefnherbergi: Hin herbergin eru bæði með dúk á gólfum og gluggum til austurs.
- Stofa/borðstofa: Er rúmgóð með teppi á gólfi, stórir gluggar til suðurs, þar er gengið út í garð.
- Gestasnyrting: Þar er dúkur á gólfi.
- Eldhús og borðkrókur: Er með dúk á gólfi, gluggar til norðurs.
- Þvottahús: Er inn af eldhúsi, þar er málað gólf, útgengt á bílaplan norðan við hús.
- Geymsla: Er inn af þvottahúsi, dúkur á gólfi.
- Bílskúr: Er 32 m
2 og stendur sjálfstæður norðan við hús.
Annað:- Vitað er að skólplagnir hússins eru í slæmu ásigkomulagi.
- Húsið þarfnast viðhalds bæði að utan sem og innan og er selt í því ástandi sem það er í dag, áhugasömum er bent á að kynna sér ástand hússins vel.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.