Miðvikudagur 11. mars
Fasteignaleitin
Skráð 29. jan. 2026

Smáratún 2

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
215.7 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
694.947 kr./m2
Fasteignamat
136.800.000 kr.
Brunabótamat
105.350.000 kr.
Mynd af Aron Már Smárason
Aron Már Smárason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2081749
Landnúmer
123522
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Svalir
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging

Heima fasteignasala kynnir einbýlishús með aukaíbúð á frábærum stað á Álftanesi.

Fallegt og vel skipulagt einbýlishús með aukaíbúð í bílskúr á eftirsóttum stað á Álftanesi í Garðabæ.
Eignin stendur á 996,3 m² eignarlóð og er byggt árið 1986. Birt stærð er 215,7 fm, auk 32,3 fm aukaíbúðar í bílskúr sem hefur nýlega verið útbúin. Um er að ræða fjölskylduvænt hús á rólegum stað, með góðum útivistarsvæðum og stuttu í skóla, leikskóla og náttúru.

Nánari upplýsingar veitir Aron Smárason lgf. aron@heimaf.is eða í síma 5832001

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um eignina hér á sölusíðu eignarinnar.

Skipting eignar

Jarðhæð

Forstofa og gestabaðherbergi:
Flísalagt rými með flísum frá Birgisson (2018). Skápur undir vaski á gestasalerni.

Stofa og borðstofa:
Rúmgóð og björt stofa með harðparketi frá Birgisson (2018). Borðstofa og setustofa sitthvoru megin í rýminu sem skapar gott flæði og notalega stemningu. Útgengt er út á rúmgóðan, afgirtan suðurpall.

Skrifstofa / vinnuherbergi:
Inn af stofu er bjart, rúmgott rými með gluggum á tvo vegu sem var skrifstofa/vinnuherbergi en er nú nýtt sem svefnherbergi. Með sérhannaðri, tvöfaldri glerhurð sem hljóðeinangrar en veitir birtu inn út þriðju áttinni. Harðparket á gólfi.

Verönd / pallur:
Stór og aflokuð suðurverönd með heitum potti, afar skjólgóð og hentug til notkunar stóran hluta ársins.

Eldhús:
Upprunaleg eikarinnrétting með harðparketi á gólfi. Gott skápapláss og möguleikar á endurnýjun eða uppfærslu fyrir þá sem óska.

Þvottahús:
Rúmgott þvottahús með útgangi út á bílastæði/bílskúr. Upprunalegar hvítar flísar á gólfi, upphengdar þvottasnúrur og gott skápapláss. Fataskápar sem ætlaðir eru fyrir allt heimilið, sem gerir þvottakerfið afar þægilegt og skipulagt.

Efri hæð

Hjónaherbergi:
Harðparket frá Birgisson, fataskápar, svalahurð og útgengt út á svalir til suðurs.

Svefnherbergi 2:
Við hlið hjónaherbergis, með sama parketi og glugga til suðurs. Innangengt upp á opið geymsluloft sem er yfir hjónaherbergi og þessu herbergi.

Svefnherbergi 3 og 4:
Hafa verið sameinuð í eitt stórt rými, skápalaust. Auðvelt er að skipta aftur í tvö svefnherbergi og seljandi getur skilað húsinu þannig ef óskað er.

Baðherbergi:
Endurnýjað 2018 með flísum frá Birgisson. Gegnheil viðarinnrétting, sturta og baðkar. Stór gluggi sem gerir rýmið bjart og fallegt.

Hol / sjónvarpshol:
Parket frá Birgisson, hátt til lofts, vifta til að dreifa hita niður á neðri hæð og geymsluloft yfir hluta. Bjart og vinalegt rými sem hefur verið nýtt sem sjónvarpshol.

Aukaíbúð í bílskúr

32,3 fm íbúð, björt og notaleg.

Nýlegt baðherbergi með sturtu og náttúrusteini á gólfi.

Forstofa nýtt einnig sem þvottahús og geymsla.Fataskápar og rúmgóð geymsla yfir öllum bílskúrnum.

Bílastæði er mjög stórt og auðvelt að tvöfalda bílskúrinn ef óskað er.

Bílskúrshurð er enn til staðar og auðvelt að breyta rýminu aftur í hefðbundinn bílskúr ef nýir eigendur kjósa.

Leigutekjur / fjárfesting:
Bæði aðaleign og aukaíbúð í bílskúr eru í útleigu í dag, með góðum og traustum leigjendum. Eignin skapar góðar leigutekjur og getur hentað vel sem fjárfesting, jafnt sem fyrir kaupendur sem hyggjast nýta eignina sjálfir til framtíðar.

Nánari upplýsingar um leigutekjur, leigusambönd og afhendingu veitir fasteignasali. aron@heimaf.is eða sími: 5832001

Mjög vönduð og fjölskylduvæn eign með sveigjanlegu skipulagi, aukaíbúð með fjölmarga möguleika (leiga, gestahús, heimavinna) og frábærri staðsetningu á Álftanesi. Eign sem býður upp á mikla nýtingu, góða útiaðstöðu og mikla möguleika til framtíðar.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/06/201543.100.000 kr.46.500.000 kr.215.7 m2215.577 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1986
3.2 m2
Fasteignanúmer
2081749
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.700.000 kr.

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Garðatorg 2
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 12:00-12:30
Skoða eignina Garðatorg 2
Garðatorg 2
210 Garðabær
143.3 m2
Fjölbýlishús
322
1011 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19 (701) ÞAKÍBÚÐ
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Hringhamar 19 (701) ÞAKÍbúð
221 Hafnarfjörður
135 m2
Fjölbýlishús
322
962 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19 (701) ÞAKÍBÚÐ
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Hringhamar 19 (701) ÞAKÍbúð
221 Hafnarfjörður
135 m2
Fjölbýlishús
322
962 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Freyjuvellir 17
Bílskúr
Skoða eignina Freyjuvellir 17
Freyjuvellir 17
230 Reykjanesbær
183.5 m2
Einbýlishús
514
554 þ.kr./m2
101.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin