** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsilegt og mikið endurnýjað 144,2 m2 raðhús á tveimur hæðum með bílskúr við Dalatanga 16 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 144,2 m2, þar af er bílskúr skráður 27,1 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu og fallegur garður með timburverönd og heitum potti í suðvesturátt.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Neðri hæð.Forstofa er með fataskáp, flísum á gólfi og gólfhita.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott og með fataskápum og parketi á gólfi. Innaf herbergi er baðherbergi. Úr herbergi er aðgengi að rými undir stiga sem er nýtt sem
geymsla.
Baðherbergi (innaf hjónaherbergi) er flísalagt, Innrétting, vegghengt salerni, handklæðaofn og 'walk in' sturta. Úr baðherbergi er útgengt út á
timburverönd með heitum potti.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi, handklæðaofni og innréttingu. Í innréttingu er gert ráð fyrir tveimur þvottavélum og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúrinn er með rafmagnsopnun á innkeyrsluhurð, heitt- og kalt vatn.
Efri hæð.Hol er með harðparketi á gólfi. Úr holi að aðgengi upp á geymsluloft.
Svefnherbergi nr. 2 er með harðparketi á gólfi og fataskáp
Svefnherbergi nr. 3 er með harðparketi á gólfi og skáp
Baðherbergi er með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofn og baðkari með sturtu aðstöðu. Flísar á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju. Í innréttingu er ofn, spanhelluborð, vínkælir, innbyggð uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur.
Stofa er í björtu rými og með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á
svalir og
timburverönd í suðurátt. Búið er að reisa vegg þar sem gert er ráð fyrir sjónvarpi.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð skv. seljanda. Eldhús og bæði baðherbergi voru endurnýjuð árið 2021-2022. Skipt var út öllum gólfefnum, innréttingum og innihurðum. Búið að endurnýja rafmagnstöflu að hluta, tengla og rofa. Gott 18 m2 geymsluloft hefur verið útbúið með stiga sem dreginn er niður. Búið er að breyta innra skipulagi. Herbergi niðri stækkað og breytt í hjónaherbergi. Þvottahúsi breytt í baðherbergi með aðgengi út í pott. Geymslu hefur verið breytt í þvottahús. Forstofa var stækkuð og settur gólfhiti. Bakgarður grafinn niður skipt um dren- og regnvatnslagnir. Svalir stækkaðar og pallur með heitum potti settur. Húsið málað að utan að aftan og allt tréverk málað að framan. Nýlegt teppi sett á stiga og bílskúr málaður að innan.
Verð kr. 118.900.000,-