Miklaborg kynnir: Snyrtileg og björt 2ja herbergja íbúð á 4.hæð í lyftuhúsi við Vallarás 4 í Árbænum. Íbúð (402) er 56,5 fm samkvæmt FMR og hefur verið mikið endurnýjuð síðustu ár. Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu og eldhús, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél, svefnherbergi og svalir með fallegu útsýni. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni ásamt geymslu.
Íbúðin er staðsett á höfuðborgarsvæðinu og er stutt í alla almenna þjónustu, leikskóla, skóla, heilsugæslu og aðra þjónustu í næsta nágrenni.
***Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 49.400.000 kr.***
Bókið skoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Nánari lýsing
Forstofa: er með fataskápum og skóskápi, harðparket á gólfum.
Baðherbergi: er nýtt, tekið allt í gegn árið 2025. Upphengt klósett, hvít innrétting og speglaskápur. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með walk in sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél.
Eldhús: er með fallegri hvítri, nýlegri innréttingu og eyju. Harðparket er á gólfi.
Stofa: er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi. Nýlegur gluggi er í stofu.
Svefnherbergi: rúmgott svefnherbergi með hvítum fataskápum og harðparket á gólfi.
Svalir: fallegt útsýni prýðir úr íbúðinni og snúa svalirnar í suður.
Geymsla: geymsla er á 1.hæð og er 3,8 fm.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni á bílaplani fyrir framan hús.
Framkvæmdir síðustu ár samkvæmt seljanda:
Nýtt baðherbergi 2025
Skipt var um þak 2021
Ný lyfta er í húsi 2023
Skipt var um ofna 2024 og nokkra glugga 2023
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna Geirsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 7700-500 eða iris@miklaborg.is
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
09/10/2020 | 28.600.000 kr. | 32.500.000 kr. | 56.5 m2 | 575.221 kr. | Já |
30/12/2016 | 17.050.000 kr. | 24.500.000 kr. | 56.5 m2 | 433.628 kr. | Já |
24/10/2011 | 11.900.000 kr. | 13.000.000 kr. | 56.5 m2 | 230.088 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
110 | 59 | 56,9 | ||
105 | 65.6 | 56,9 | ||
101 | 45.3 | 56,5 | ||
101 | 49.7 | 52,5 | ||
108 | 70.2 | 55,9 |