RE/MAX kynnir í einkasölu: Falleg þriggja til fjögurra herbergja 80,7 fm íbúð við Laugaveg 132. Góð lofthæð, svalir til suðurs. Sér stæði á baklóð. Nýbúið að skipta um þakjárn á húsinu.Pantaðu skoðun hjá Hauki lgf í s: 699-2900 eða á haukur@remax.isSmelltu hér til að fá söluyfirlit strax!
Smelltu hér til að skoða eignina í 3DNánari lýsing: Anddyri/hol með harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp og harðparketi á gólfi, útgengt á suður svalir.
Barnaherbergi með harðparketi á gólfi, innangengt í hjónaherbergi.
Eldhús var endurnýjað fyrir nokkrum árum, sprautulökkuð hvít innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.
Baðherbergi hefur einnig verið endurnýjað fyrir nokkrum árum, físalagt í hólf og gólf, sturta, vegghengt salerni og innrétting undir handlaug.
Stofa/borðstofa nær í gegnum íbúðina með gluggum til norðurs og suðurs, harðparket á gólfi. Góð lofthæð er í íbúðinni allri.
Sér þvottahús er á hæðinni með vaski.Sér geymsla á jarðhæð.Á baklóð fylgir íbúðinni merkt stæði. Allar nánari upplýsingar veitir: Haukur Hauksson lögg. fasteignasali í s: 699-2900 eða á haukur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk