Föstudagur 23. október
Fasteignaleitin
Opið hús:26. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 23. okt. 2026

Goðatún 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
100 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
699.000 kr./m2
Brunabótamat
47.200.000 kr.
Byggt 1943
Jarðhæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
20701982
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir og Sigurður Samúelsson Lgf  | ss@aldirfasteignir.is kynna:

Góð 57,7 fm, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi.  Íbúðinni fylgir 42,3 fm bílskúr. Samtals 100 fm.
Íbúðin er í tvíbýlishúsi, mjög vel staðsett miðsvæðis í Garðabæ þar sem göngufæri er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og fleira.

Forstofa er flísalögð.  
Stofan og hol eru með harðparketi á gólfi.
Eldhúsið er með eldri innréttingu og flísum á gólfi.
Svefnherbergin tvö eru með harð / plastparketi á gólfi og er fataskápur í stærra herberginu.
Baðherbergið er flísalagt með sturtu, handklæðaofni og lítilli innréttingu.
Þvottahús er í sameiginlegu rými, bæði innangengt úr íbúð og einnig að utan.

Bílskúrinn er 42,3 fm og er rúmgóður með steypt gólf og bílskúrshurð sem þarfnast lagfæringar. Lóðin er sameiginleg.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson lgf í síma 896-2312 eða ss@aldirfasteignir.is
------------------------------------------------------------------------------------

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Maríugata 28
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Maríugata 28
Maríugata 28
210 Garðabær
89,9 m2
Fjölbýlishús
312
889 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Hrísmóar 10
Skoða eignina Hrísmóar 10
Hrísmóar 10
210 Garðabær
93,7 m2
Fjölbýlishús
312
735 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (204)
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (204)
210 Garðabær
131,6 m2
Fjölbýlishús
423
911 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (302)
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (302)
210 Garðabær
70,1 m2
Fjölbýlishús
211
1054 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin