Einstaklega falleg 3ja herbergja íbúð á 4.hæð í lyftuhúsi við Mánatún 11 í Reykjavík.* Tvö stæði í bílakjallara fylgja íbúðinni
* Tveir inngangar eru í húsið frá Borgartúni og Mánatúni
* Tvennar svalir
* Birt stærð skv. HMS er 133,6 fm
Nánari upplýsingar veitir
Auður Ýr Jóhannsdóttir a.lgf. í síma 897-0900 eða audur@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
*palssonfasteignasala.is**verdmat.is*Nánari lýsing:Anddyri er parketlagt ásamt góðu skápaplássi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými, parket á gólfi, útgengt á stórar suður svalir og svalir til norðurs.
Eldhús með parket á gólfi, falleg sérsmíðuð innrétting, eyja með helluborði.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Mikið skápapláss.
Þvottahús með flísum á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, ágætt skápapláss og vaskur.
Geymsla 8,9 fm er staðsett í kjallara, auka lofthæð sem nýtist betur en fm segja til um
Sameign er vel skipulögð og snyrtileg með mynddyrasíma í anddyrum sem eru tvö, sunnan og norðan megin. Teppalögð gólf í stigahúsi og hálkufríar flísar á anddyrisgólfum.
Hjólageymsla á jarðhæð og er í læstri sameign í norður anddyri.
*Lofthæðin í íbúðinni er mikil þ.e. um 2,7m
* Seljendur skoða skipti á parhúsi, raðhúsi eða einbýli með 3+ svefnberbergjum í eftirfarandi hverfum: 110, 112, 113, 200, 201, 210
Góð ráð fyrir kaupendur&SeljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.